149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

brottkast.

[15:17]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Í fréttum undanfarið hefur brottkast á fiski verið áberandi. Þar sést hve fullkominn tæknibúnaður til að fylgjast með er orðinn og er það vel. Það eru allir sammála um að brottkast á fiski eigi ekki að eiga sér stað en sá hængur er á að ekki er alltaf heimilt að landa fiski sem slæðist með í veiðarfærin. Þekkjandi margar útgerðir og marga sjómenn veit ég að enginn vill henda fiski í sjó sjái menn sér hag í því að landa fiskinum og heimildir til að landa honum eru fyrir hendi. Landssamband smábátaeigenda fór fram á það að grásleppuveiðimenn, sem hafa t.d. fengið þorsk í meðafla, fengju að taka upp netin tímabundið án þess að dagar grásleppuleyfisins teldu á meðan. Því var hafnað.

VS-afli, sem oft er kallaður Hafróafli, er heimild til útgerða til að landa 5% af ársafla utan veiðiheimilda. 80% af aflatekjum myndu renna til ríkissjóðs og 20% til viðkomandi útgerðar. Ef heimildin yrði t.d. hækkuð í 10% myndi strax muna um helming á þessari heimild og þá yrði vandinn minni.

Mig langar að spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra hvort hann hafi skoðað þetta mál og sé með einhverja lausn á því þannig að útgerðir sjái sér hag í því að koma með að landi allan afla sem kemur í veiðarfæri.