brottkast.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Já, ég hef orðið var við þessa umræðu og hún kemur reglulega upp. Ég vil fyrst af öllu minna á þá vinnu sem er í gangi en það er vinna sem snýr að því að endurskoða allt fiskveiðieftirlit í landinu. Á grundvelli þeirrar skýrslu sem Ríkisendurskoðun skilaði þinginu, í kjölfar beiðni hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, setti ég af stað ákveðið verkefni og fyrstu skref hafa verið stigin.
Það er ekki auðvelt að eiga við þetta en lögin eru tiltölulega afdráttarlaus og meðan þeim er ekki breytt eða reglum verða menn einfaldlega að fylgja þeim fyrirmælum sem þar eru sett. Ég er alveg með á því að það er illgerlegt í sumum aðstæðum að fara nákvæmlega eftir bókstafnum. Ég þekki það sjálfur frá fyrri tíð.
Þetta er verkefni sem við þurfum einhvern veginn að vinna saman að. Það er ekki auðvelt. Það er alveg útilokað að meta heildarumfang brottkastsins. Hv. þingmaður nefndi áðan grásleppuvertíðina. Alla tíð hefur legið það orð á að þar sé brottkast stundað og maður hefur heyrt nánast fáránlegar tölur í því efni. Brottkast á grásleppu er að flestra mati verulegt. Það kann vel að vera að við þurfum einhvern veginn að leita sérstakra leiða til þess að taka á þeim vandamálum. Í það minnsta eru þær sögur sem mér hafa borist til eyrna þess eðlis að í raun er ekki forsvaranlegt að láta það átölulaust.