staða Landsréttar.
Herra forseti. Á morgun eru átta vikur, 56 dagar, frá því að Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp sinn dóm í Landsréttarmálinu. Áður höfðu héraðsdómur, Landsréttur og Hæstiréttur fjallað um embættisfærslur Sigríðar Á. Andersen við skipan landsréttardómara og varð niðurstaðan ávallt sú að hún hefði brotið lög við þessa framkvæmd.
Í hvert sinn sem dómur féll virtist þáverandi ráðherra vera ósammála niðurstöðunni og svo virðist sem henni hafi tekist að sannfæra samráðherra sína í ríkisstjórn og stjórnarþingmenn um að allir þrír dómstólarnir færu villir vega. Þetta hefur komið berlega í ljós enda hefur ríkisstjórnin að litlu leyti brugðist við því óvissuástandi sem ríkt hefur frá upphafi starfs Landsréttar í janúar 2018 og margítrekað hefur verið varað við hér og annars staðar.
En gert er gert, við getum ekki hangið í því sem hefði átt að gera heldur verðum við að horfa á hvað ríkisstjórnin ætlar að gera núna. Dómstólasýslan, sem hvað gleggst þekkir málastöðu í Landsrétti, sendi strax í sömu viku og dómur Mannréttindadómstólsins féll frá sér ákall til stjórnvalda um að koma réttinum til aðstoðar. Fjórir dómarar við Landsrétt taka ekki þátt í dómarastörfum og mun sá fimmti bætast við í haust vegna námsleyfis. Er um að ræða þriðjung dómara við réttinn. Málafjöldinn fyrir dómstólnum minnkar ekki nema síður sé og þetta er per se brot á réttlátri málsmeðferð fyrir dómi, fyrir utan hvað þetta er alvarlegt fyrir þau viðkvæmu mál sem eru rekin fyrir dómstólnum.
Herra forseti. Það er ekki hægt að bíða niðurstöðu yfirdeildar vegna málskots íslenska ríkisins sem enn er ekki farið út til Strassborgar. Hvort sem áfrýjun verður leyfð eða ekki er staðan ljós. Það verður að koma Landsrétti til aðstoðar. Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra: Er ekki rétt að fara að sinna því ábyrgðarhlutverki sem þið hafið að hafa réttarkerfið á Íslandi starfhæft?