149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

staða Landsréttar.

[15:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og ætla að byrja á því að halda því til haga að að mínu mati er dómskerfið starfhæft. Ég er ekki sammála því að dómskerfið á Íslandi sé ekki starfhæft.

Hér er spurt: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Jú, dómurinn kom fyrir átta vikum. Þá tók við ferli sem fólst í því að greina dóminn, sem var það viðbragð sem þurfti að fara í, því að þrátt fyrir að við hefðum annars vegar getað unnið málið eða tapað því gátum við ekki vitað hvað stæði í dómnum. Það eru þrjár vikur síðan að óskað var eftir endurskoðun. Það kann að taka nokkrar vikur að fá svar við því. Hæstiréttur hefur sagt að dómararnir séu lögmætt skipaðir. Hæstiréttur hefur ekki tekið aðra afstöðu síðan þá.

Hér er spurt: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera og hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að koma þeim til aðstoðar? Ég sagði þegar ég tók þá ákvörðun að við ættum að óska eftir endurskoðun að ég ætlaði ekki að grípa til annarra aðgerða fyrr en við fengjum úr því skorið hvort málið yrði tekið fyrir eða ekki. Mér finnst stundum í umræðunni eins og þetta sé ekkert mál eða lítið mál og sjálfsagt, að það liggi fyrir tillögur og við þurfum aðeins að velja hver þeirra sé skást til þess að laga stöðuna þannig að við séum þá komin með óumdeildan 15 manna Landsrétt. Ég hef hins vegar ekki séð neina tillögu sem lagar stöðuna sem við erum í.

Það eru til tillögur og ýmsu hefur verið varpað fram. En það verður að hugsa í því samhengi, hvort sem það er ég eða einhver annar, að það sem dómsmálaráðherra gerir á hverjum tíma kunna að vera afskipti af dómskerfinu. Það er ekki eins og fyrir liggi lagabálkur sem við þurfum einfaldlega að lagfæra til þess að dæmt sé á annan hátt næst heldur kunna hvers konar afskipti ráðherra, þ.e. framkvæmdarvaldsins, af dómsvaldinu líka að hafa einhver áhrif. Þess vegna (Forseti hringir.) segi ég: Þessi dómarar eru lögmætt skipaðir og við erum einfaldlega að bíða eftir því að fá úr því skorið hvort fallist verður á beiðni okkar um endurskoðun.