149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

staða Landsréttar.

[15:28]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Réttarkerfið starfhæft? Bíllinn ekur á þremur hjólum. Mögulega kemst hann eitthvað áfram, en hann kemst ekki langt. Það er eins með Landsrétt, ef ríkisstjórnin ætlar ekki að gera neitt fyrir Landsrétt og láta hann starfa á þremur hjólum í stað fjögurra vitum við öll hvað það þýðir. Það bitnar á þeim sem síst skyldi. Það eru þeir sem eiga sér ekki málsvara, eins og lítil börn, sem bíða niðurstöðu, eða þeir sem eru sakborningar eða brotaþolar í sakamálum. Það er því mjög óábyrgt að segja að dómstóll sem er á þremur hjólum í stað fjögurra sé starfhæfur. Það eru þrjár vikur síðan ríkisstjórninni datt í hug, fimm vikum eftir að dómur féll, að áfrýja. En beiðni um áfrýjun er ekki enn þá farin frá íslenskum stjórnvöldum. Enn er verið að vinna það bréf.

Þannig að það er ekki rétt að það hafi farið út fyrir þremur vikum. (Dómsmrh.: Ég sagði það ekki.) Nú? (Gripið fram í: Jú.) (Dómsmrh.: Nei, ég sagði: Ákvörðunin var tekin fyrir þrem vikum.) Ákvörðunin var mögulega tekin fyrir þremur vikum. (Forseti hringir.) Lagabálkurinn er dómstólalög. Ég skal koma með þrjár tillögur til hæstv. ráðherra. Það er hægt að setja bráðabirgðaákvæði í dómstólalögin um að setja (Forseti hringir.) fjóra dómara við réttinn í stað skipaðra. Það er hægt að veita leyfi til þeirra sem nú eru verklausir. (Forseti hringir.) Svo er fjöldi annarra ákvæða sem ég get tilgreint í hliðarherbergi þegar ég hef nægan tíma.