149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

staða Landsréttar.

[15:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég er alveg klár í samtal við hv. þingmann og hv. þm. Ingu Sæland til að hjálpa mér við að leysa þetta mál. Það var tekin ákvörðun um að óska eftir endurskoðun og það tekur tíma að vinna slíkt erindi. Ég skammast mín ekki fyrir að taka þann tíma sem ég tel að þurfi að taka til að það sé almennilega gert. Ég á ekki erfitt með að vera gagnrýnd fyrir að vanda mig of mikið. Dómarar eru sjálfstæðir og hér er sagt að ég geti hjálpað þeim að fara í leyfi. Ég sendi ekki dómara í leyfi. Það er ekki þannig. Dómarar meta sjálfir hæfi sitt. Þeir hafa sagt: Að svo stöddu teljum við okkur ekki geta dæmt. Þeir hafa ekki farið í leyfi. Þeir hafa ekki hætt. Hæstiréttur segir að þeir séu lögmætt skipaðir. (Gripið fram í.) Það er ekki hægt að taka fólk úr embætti og Hæstiréttur segir að þeir séu lögmætt skipaðir.

Ég kannast við allar þessar tillögur sem hv. þingmaður fór yfir. Ég hef aldrei gefið það út, og ekki ríkisstjórnin heldur, að ríkisstjórnin ætli ekkert að gera. Við tókum ákvörðun um, (Forseti hringir.) eða ég tók ákvörðun um, að óska eftir þessari endurskoðun. Það er næsta skref. Þegar við fáum úr því skorið hvort það verður gert eða ekki tökum við málið í framhaldinu.