stafræn endurgerð íslensks prentmáls.
Forseti. Á útmánuðum í fyrra, nánar tiltekið í febrúar, gerðist nokkuð sem ekki gerist of oft á hinu háa Alþingi en þá féllu öll greidd atkvæði á sama máta þegar hv. þingmenn samþykktu þingsályktunartillögu undirritaðs um að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem geri kostnaðar- og tímaáætlun um stafræna endurgerð íslensks prentmáls sem verði aðgengileg til lestrar á nettengdum búnaði og kanni möguleika þess að ná samningum við höfundaréttarhafa um slík afnot stafrænnar endurgerðar ritverka.
Í umræðu um málið notaði ég gjarnan líkingu við vef sem við þekkjum mörg, sem er tímarit.is, því að í sem skemmstu máli gengur þessi tillaga út á að kanna hagkvæmnina í því að stafvæða íslenskt prentmál bóka sem eru ekki lengur söluvara á markaði þannig að einfaldlega sé hægt að fletta upp í þeim á hinu alltumlykjandi interneti.
Frú forseti. Ég reiði æðruleysið í þverpokum og hef því fullan skilning haft á því að hæstv. ráðherra hafi ekki enn skilað skýrslu til Alþingis um þau mál. En þar sem ég hef ávinning af því að tíðinda sé að vænta í skýrslugerðarmálum ákvað ég að nýta þetta tækifæri til að ræða aðeins við hæstv. ráðherra um hvort skýrslan eða greinargerðin sé tilbúin, hvað málinu líði. Er lagt til að við förum í þau mál? Gæti sú ályktun Alþingis, samþykkt með 50 samhljóða atkvæðum, orðið að veruleika og við séð stafræna endurgerð íslensks prentarfs?