stafræn endurgerð íslensks prentmáls.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta mál á dagskrá og fyrir að vera ötull talsmaður þess, enda er málið gríðarlega mikilvægt fyrir íslenskan menningararf. Með stafvæðingunni yrði stafræn tækni nýtt til að stórauka aðgengi almennings að ritmáli á íslensku og stutt væri við markmið um að efla stöðu íslensks máls í stafrænum heimi. Nú þegar hefur talsvert verið unnið að endurgerð íslensks prentmáls og t.d. hefur Landsbókasafnið fært um 70% þeirra bóka sem gefnar voru út fyrir 1850, 1.700 bækur, þarna yfir. Hins vegar er ljóst, eins og kemur fram í máli hv. þingmanns, að við þurfum að gera talsvert betur í þessum málum.
Virðulegi forseti. Ég mun gera munnlega grein fyrir skýrslunni innan tíðar en helstu niðurstöður hennar eru að miða skuli áætlun um stafvæðingu íslensks prentmáls, eða a.m.k. í einum áfanga, við bækur á íslensku, bæði frumsamdar og þýddar, sem skráðar eru í bókasafnskerfið Gegni. Fjöldi skráðra rita frá 1850–2015 er rúmlega 88.000 og miðað við ætlaðan meðalfjölda blaðsíðna bóka væri heildarfjöldi blaðsíðna á þessu tímabili rúmlega 9,3 milljónir.
Virðulegi forseti. Skýrslan er á lokametrunum. Við erum komin með drög að niðurstöðum. Þetta er mikið þjóðþrifamál vegna þess að þetta tengist líka máltækniverkefninu, þ.e. að setja þetta allt í sama samhengi og auka aðgang. Mun ég í seinna svari mínu gera betur grein fyrir framvindu málsins.