stafræn endurgerð íslensks prentmáls.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir skýr og greinargóð svör og er spenntur fyrir því að hægt sé að fara að taka næstu skref í verkefninu. Ég vona að í ekki of rólegri dagskrá Alþingis á næstunni gefist tími til að ræða þá skýrslu frekar. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á er þetta býsna mikilvægt mál.
Mér finnst það óvæntar upplýsingar eða konfektmolar að það séu 9,3 milljónir blaðsíðna af bókum frá 1850–2015. Ég vissi að við værum bókaþjóð. Það er athyglisvert að sjá hvað við höfum skrifað margar blaðsíður á því árabili. En eins og hæstv. ráðherra kom inn á er þetta gríðarlega mikilvægt og mun í raun og veru gera það að verkum að við getum flett upp í bókum hvar sem við erum, hvort sem við búum við hliðina á bókasafni eða úti í heimi eða í strjálbýlinu, og yrði þá til að efla framgang íslenskra bókmennta sem við styðjum öll.