hollustuhættir og mengunarvarnir.
Herra forseti. Það tíðkaðist hér áður fyrr að skamma Albaníu þegar menn voru í raun að skamma Kína. Mér datt það í hug þegar ég heyrði hv. þingmann tala hér á undan, því að auðvitað tekur þetta tiltekna frumvarp eitt og sér, sem er EES-innleiðing, ekki á plastvandamálum heimsins eða Íslands. Það gerir hins vegar 18 skrefa aðgerðaáætlun sem er í samráðsgáttinni. Það er heildræn nálgun á það hvernig við ætlum að vinna bug á of mikilli plastnotkun á Íslandi. Ég veit ekki hvort hv. þingmanni er kunnugt um þá aðgerðaáætlun. Hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var í þeim aðgerðahópi og ég kom þar nokkrum sinnum inn. Við minntust meira að segja á vinnu þessa hóps í þingræðu í fyrradag, held ég, eða á föstudaginn var, og þá aðgerðaáætlun sem liggur fyrir. Það má koma hér fram.
Varðandi plastpoka og bréfpoka er það þannig að þeir bréfpokar sem notaðir eru í stað plastpoka koma yfirleitt úr skógum sem eru vottaðir á þann hátt að þeir eru endurnýjaðir í þeim takti sem tré úr þeim eru notuð. Ég hafna því að þeir burðarpokar séu verri en plast.
Bómullarpokarnir margfrægu sem notaðir eru hér á Íslandi fyrst og fremst eru úr endurunninni bómull. Ég á svona poka og ég hef örugglega notað þá oftar en 200 sinnum þannig að hv. þingmaður getur verið alveg rólegur yfir því að við erum ekki hér að brúka þá bómullarpoka sem hann nefnir í þeim mæli að það komi á nokkurn hátt nálægt plastpokanotkuninni.
Þetta er sem sagt lítið skref og EES-innleiðing í þá átt sem við ætlum öll að stefna að, að takmarka notkun plasts, og ég er ekki að segja að banna það algjörlega því að það er svo fráleitt en að takmarka þá notkun plasts sem við getum verið án.
Hér notaði hv. þingmaður orðið frasar. Ég ætla að herma það upp á hann.