hollustuhættir og mengunarvarnir.
Herra forseti. Þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni og auðvitað hefði ég átt að segja að þetta væri að stofni til EES-gerð sem gengi lengra. Hún gengur lengra. Og það er nákvæmlega í þágu umhverfismála. Það er algengt að EES-gerðir gangi lengra í einstökum atriðum. Alveg rétt, hér erum við að ganga lengra, en á jákvæðan máta.
Ég tel alveg ljóst að við bönnum þessa poka eftir tiltekið árabil og við gerum líka annað til að koma til móts við verslunina hér heima, sem á töluverðar birgðir af þessum þunnu pokum. Við frestum gildistöku þessa banns til að koma til móts við verslunina hér sem á einhverjar birgðir af þeim. Ég tel að við höfum við innleiðinguna og við afgreiðslu þessa máls gætt þess að hugsa um umhverfið annars vegar og hins vegar tekið tillit til þessa tiltekna hagsmunamáls verslunar á Íslandi.