149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

802. mál
[17:48]
Horfa

Flm. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga, sem Þingvallanefnd leggur fram, um breytingu á lögum um þjóðgarðinn á Þingvöllum, sem eru frá 2004, og snýst frumvarpið um samninga við þjónustuaðila. Flutningsmenn eru auk mín hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Hanna Katrín Friðriksson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Páll Magnússon og Karl Gauti Hjaltason, sem sagt Þingvallanefnd eins og hún leggur sig.

Þetta frumvarp er í þremur greinum og 1. gr. hljóðar svo:

„Á eftir 5. gr. laganna kemur ný grein, 5. gr. a, svohljóðandi:

Óheimilt er að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Þingvallanefnd. Í slíkum samningum skal setja þau skilyrði fyrir starfseminni sem talin er þörf á, m.a. vegna verndarmarkmiða þjóðgarðsins. Þingvallanefnd skal móta atvinnustefnu vegna reksturs innan þjóðgarðsins, þar með talið móta skilyrði fyrir því að aðilar megi stunda atvinnu innan þjóðgarðsins, m.a. með tilliti til verndarmarkmiða þjóðgarðsins, og samninga þar um. Þingvallanefnd er heimilt að setja reglugerð þar sem mælt er nánar fyrir um skilyrði fyrir rekstri, málsmeðferð og gerð samninga samkvæmt ákvæði þessu sem ráðherra staðfestir.

Ákvæði þetta gengur framar ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.“

2. gr. er stutt og laggóð: „Við 2. málslið 1. mgr. 7. gr. laganna bætist: og taka gjöld vegna samninga skv. 5. gr. a sem skulu standa undir kostnaði við veitingu leyfa, umsjón og eftirlit vegna hinnar leyfisskyldu starfsemi.“

3. gr. er hefðbundin: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að grípa ofan í greinargerð. Hér segir:

„Á síðastliðnum árum hefur ásókn fólks í þjóðgarðinn á Þingvöllum vaxið í samræmi við fjölgun ferðamanna til Íslands en þjóðgarðurinn er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Einkum er bent á að samhliða þessari fjölgun gesta hefur færst í aukana að gestir þjóðgarðsins sæki í að njóta afþreyingar innan þjóðgarðsins. Til þess að geta fullnægt verndarmarkmiðum þjóðgarðsins þykir flutningsmönnum nauðsynlegt að mæla fyrir um að atvinnurekstur geti einvörðungu farið fram innan þjóðgarðsins á Þingvöllum á grundvelli samnings við Þingvallanefnd. Með þeim hætti geta þjóðgarðsyfirvöld stuðlað að því að atvinnurekstur innan þjóðgarðsins sé á hverjum tíma samrýmanlegur verndarmarkmiðum hans.“

Enn fremur segir um meginefni frumvarpsins:

„Með frumvarpinu er lagt til að óheimilt verði að reka atvinnutengda starfsemi innan staðarmarka þjóðgarðsins á Þingvöllum án samnings um slíka starfsemi við Þingvallanefnd. Einnig er lögð til gjaldtökuheimild vegna gerðar slíkra samninga, umsjón með þeim og eftirliti. Um er ræða nýmæli en sambærilegt fyrirkomulag er að finna í gildandi lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, með síðari breytingum.

Reynslan hefur sýnt að áhugi rekstraraðila til að nýta auðlindir þjóðgarðsins hefur aukist gífurlega með auknum fjölda ferðamanna síðustu ár. Með hliðsjón af verndarmarkmiðum þjóðgarðsins kann að vera nauðsynlegt að setja rekstraraðilum skilyrði og mögulega takmarka þann fjölda aðila sem fær að nýta gæðin hverju sinni þar sem svæðið ber ekki ótakmarkaðan fjölda ferðamanna og átroðningur rýrir verndargildi svæðisins.“

Um einstakar greinar frumvarpsins er nokkurt mál í frumvarpsskjalinu og þar segir um 1. gr., með leyfi forseta:

„Í greininni er lagt til að óheimilt verði að reka starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Þingvallanefnd. Með hliðsjón af verndarmarkmiðum þjóðgarðsins kann að vera nauðsynlegt að takmarka þann fjölda aðila sem fá aðstöðu innan tiltekinna svæða þjóðgarðsins“ — það er sem sagt verið að tala um takmörkuð gæði — „og velja á milli aðila sem óska eftir slíku.“ — Það er hægt að gera með útboði eða á annan hátt. — „Almenn sjónarmið sem gilda við úthlutun takmarkaðra gæða koma þar til skoðunar, svo sem um opinbera auglýsingu, þannig að áhugasömum aðilum sé kunnugt um að úthlutun standi fyrir dyrum. Þá verða að liggja fyrir þau sjónarmið sem hafa vægi við ákvörðunartöku um úthlutun, m.a. með tilliti til verndarmarkmiða þjóðgarðsins, og gæta þarf þess að ákvörðun sé tekin á málefnalegum grundvelli. Gert er ráð fyrir að gerð verði nánari grein fyrir málsmeðferð í reglugerð.“

Svo langar mig að koma aðeins að öðru atriði:

„Í 3. mgr. nýrrar 5. gr. a er lagt til að mælt verði fyrir um að ákvæði laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum gangi framar ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, þar sem lítill hluti þjóðgarðsins er innan þjóðlendu.“

Ég kannaði hversu stór sá hluti er og það er um 37% sem eru innan þjóðlendu, við getum sagt nyrsti hluti þjóðgarðsins. Þess vegna kemur svo áfram um einstakar greinar frumvarpsins:

„Það þurfi því ekki að fá leyfi sveitarstjórna vegna nýtingar lands og landsréttinda innan þjóðgarðsins heldur er fullnægjandi að fá til þess leyfi Þingvallanefndar.“

Enn fremur um 2. gr.:

„Í greininni er lögð til viðbót við 1. mgr. 7. gr. um gjaldtöku. Gjald það sem gert er ráð fyrir í hinum nýja málslið er nauðsynlegt til að mæta kostnaði við gerð samninga sem gert er ráð fyrir í nýrri 5. gr. a og tengdum kostnaðarliðum. Gert er ráð fyrir að nánar verði mælt fyrir um gjaldtökuna í reglugerð. “

Það er kannski óþarfi að fjölyrða um mikilvægi atvinnustefnu. Það er svo augljóst að með auknu álagi, stórauknu álagi í raun og veru, á þjóðgarðinn á Þingvöllum er mjög mikilvægt að slík atvinnustefna verði til. Ekki þarf að fjölyrða um reglur, skriflega samninga, gegnsæi og verndarstefnuna o.fl. sem liggur til grundvallar þessari ósk um að geta mótað atvinnustefnu og starfað eftir henni.

Álitið er að gott sé að hafa sem mest samræmi milli þjóðgarðanna þriggja um atvinnustefnu en hún verður aldrei samhljóða í öllum þjóðgörðunum, enda er eitt og annað sem er ólíkt með þeim, bæði stærð og fjölbreytileiki og nánd við byggð og annað slíkt. Það er því eðlilegt að það sé einhver munur þótt grunnstefin séu þau sömu hjá öllum þremur þjóðgörðunum.

Atvinnustefna þjóðgarðsins á Þingvöllum er í vinnslu en þetta frumvarp er einmitt forsenda þess að Þingvallanefnd og starfsfólks þjóðgarðsins hafi í raun heimild til að leggja hana fram og afgreiða. Þar með vona ég að frumvarpið lendi eins og vera ber hjá hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til afgreiðslu og óska þess að sjá afgreiðslu þess áður en þinghlé verður í byrjun sumars.

Herra forseti. Ég hef lokið málinu.