149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

802. mál
[18:02]
Horfa

Flm. (Ari Trausti Guðmundsson) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Framkvæmdarvaldsrök eða ekki, ég kippi mér ekki upp við það. Alþingi setti þessi lög og Alþingi hefur löggjafarvaldið og Alþingi breytir þá þessum lögum. Þetta er ekkert flókin formúla. Þetta hefur verið svona í nærri 90 ár. Og af hverju? Menn staldra við sérstöðu Þingvalla og svo getum við deilt um hvort þessi tengsl Alþingis eigi að vera á einhvern máta, að Alþingi hafi neitunarvald í stefnumótun t.d. Þingvallanefndar eða eitthvað slíkt, ef hún er til, eða þjóðgarðsstjórnarinnar ef hún er til. Við getum bara talað um það. Ég ætla ekki að gera það hér.

Þetta verður ekki leiðrétt nema með tilstyrk Alþingis, t.d. þeim lögum sem ég er að tala um varðandi Þjóðgarðastofnun. Og persónulega færi ég ekki á límingunni þó að þessi tiltekni eini staður á landinu væri með einhverja sérstöðu og eftirlitshlutverk Alþingis með sjálfu sér væri að einhverju leyti þar til staðar. Ég er ekki svo mikill prinsippmaður og ég get ekki séð eina einustu undantekningu frá því nokkurs staðar í samfélaginu.

Eins og ég segi er sennilega pólitískur ágreiningur um hvort Þingvallanefnd eigi að vera til, hvaða hlutverk hún eigi að hafa, hvort Þjóðgarðastofnun og lögin væntanlegu sem koma fram eru rétt eða röng, góð eða gölluð. Ég veit ekki um það. Meðan þetta er svona tel ég alveg hárrétt að samþykkja þetta frumvarp og leyfa þessu að ganga fram. Okkur vantar þessa atvinnustefnu og hún verður ekki búin til öðruvísi en með þessu frumvarpi og með vinnu Þingvallanefndar og starfsfólki þjóðgarðsins.