149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:04]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Umsagnir sem sendar voru síðast til Alþingis um svipað frumvarp og við ræðum nú voru allar neikvæðar, ef ég man rétt, nema umsagnirnar frá versluninni í landinu. Ég er ekki fylgjandi þessu frumvarpi frekar en öðrum svipuðum sem hér hafa verið rædd reglulega síðastliðinn áratug og jafnvel lengur. Ég hef lýst þeirri afstöðu minni áður héðan úr þessum ræðustól og fyrir henni eru eftirfarandi rök:

Í fyrsta lagi. Áfengi er ekki eins og hver önnur matvara og þarf varla að rökstyðja það frekar. Skaðsemi áfengis er vel þekkt og þótt ekki sé nema bara vegna þess á aðeins að selja áfengi í sérverslunum.

Í öðru lagi. Aukið aðgengi að áfengi eykur neyslu. Það hafa rannsóknir sýnt. Nú gætu þeir sem eru ósammála mér um frumvarpið sagt að aukningin sé ekki svo mikil. Þá er því til að svara að hvert prósentustig sem bætist við í aukinni neyslu áfengis vegur enn þyngra og veldur enn meiri skaða en prósentustigið þar fyrir neðan. Þarna geta t.d. legið mörkin á milli hóflegrar neyslu og of mikillar neyslu.

Í þriðja lagi. Aukin neysla áfengis veldur heilsuskaða. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin metur það svo að áfengisneysla sé meðal sterkustu áhættuþátta lýðheilsu. Kostnaður vegna neyslu áfengis kemur fram í samfélaginu, í heilbrigðiskerfinu, löggæslu og dómskerfinu, tryggingakerfinu og í atvinnulífinu. Ef hv. þingmönnum er alvara með því að styðja frumvarpið þurfa þeir líka að segja hvaðan eigi að taka peningana til að mæta þeim kostnaði.

Í fjórða lagi. Aukin neysla eykur vanlíðan afkomenda og aðstandenda þess sem neytir áfengis í óhófi. Ef stjórnvöld taka ákvarðanir sem leiða til aukinnar neyslu áfengis mun vanlíðan, t.d. barna og ungmenna þessa lands, aukast. Það er meðal þeirra aukaverkana sem frumvarpið hefði í för með sér, yrði það að lögum.

Í fimmta lagi. Ef áfengi er í sérverslunum sem eingöngu selja áfengi er það sérstök ákvörðun að ganga inn í áfengisverslunina og kaupa áfengi en ekki hugdetta, svona um leið og gengið er fram hjá áfengisrekkanum í matvörubúðinni eða sérversluninni með matvöruna. Forvarnastarf Íslendinga í áfengismálum hefur vakið alþjóðlega athygli. Það starf byggir m.a. á því hvernig við höfum takmarkað aðgang — og þannig vil ég hafa það áfram hér á landi.

Hver er hin mikla þörf fyrir að gera það sem frumvarpið boðar? Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur skrifaði góða grein sem birtist í Fréttablaðinu fyrir nokkrum árum og er enn í góðu gildi. Þar segir hann m.a., með leyfi forseta:

„Áfengi er ekki eins og hver önnur vara. Að neyta áfengis er ekki það sama og neyta gosdrykkjar eða mjólkur. Áfengi er vímugjafi og á að mínu mati ekkert erindi inn í stórmarkaði, heldur ætti vegna eðlis og skaðsemi þess að hindra sem mest aðgengi að áfengi.

Helstu þættir áfengisvarnastefnu opinberra aðila eru og hafa verið öflugar forvarnir, hár áfengiskaupaaldur, háir áfengisskattar og takmarkað aðgengi að áfengi. Áfengisforvarnir hafa í gegnum tíðina verið mjög öflugar, bæði af hálfu opinberra aðila og félagasamtaka eins og SÁÁ, íþróttahreyfingarinnar og góðtemplarareglunnar. Áfengiskaupaaldur hefur verið hærri á Íslandi miðað við önnur lönd sem við berum okkur saman við. Það eru helst Svíþjóð og Finnland sem hafa sömu aldurstakmörk og Ísland. Áfengissala hefur verið undir stjórn ríkisins síðan áfengisbannið var afnumið að hluta árið 1922.“

Gunnar Alexander heldur áfram, með leyfi forseta:

„Ef einni stoð af þeim fjórum sem áfengisstefna stjórnvalda byggist á yrði breytt mun afleiðingin verða meiri áfengisneysla. Sú aukning mun leiða til fleiri félagslegra vandamála, meiri ölvunaraksturs, fleiri heimilisofbeldismála, fleiri skilnaða, fleiri áfengistengdra dauðsfalla, fleiri tapaðra vinnustunda vegna áfengisneyslu og stofnanir samfélagsins […] munu þurfa að eyða meiri tilkostnaði […] í að glíma við afleiðingarnar.

Í nýlegri sænskri rannsókn var rannsakað hvaða áhrif það myndi hafa að leyfa sölu áfengis í matvöruverslun. Ölvunarakstur myndi aukast, árásum, dauðsföllum og veikindadögum myndi fjölga og ef tölurnar yrðu heimfærðar fyrir Ísland myndi tilfellum ölvunaraksturs fjölga um 230 á ári, árásum um 700 á ári og dauðsföllum vegna meiri áfengisnotkunar um 70 á ári. Veikindadögum myndi fjölga um 390 þúsund. […]

Er ástæða til að breyta um stefnu? Nei.“

Og hér lýkur tilvitnun í Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðing.

Forseti. Embætti landlæknis hefur birt samantekt um rannsóknarskýrslur um áfengismál. Rannsóknirnar eru víðtækar og niðurstöðurnar samhljóma. Nú ætla ég að vitna í nokkrar þeirra. Þær eru mjög margar og ég hvet hv. þingmenn til að skoða þær allar.

Árið 2012 voru skoðuð áhrif einkavæðingar áfengissölu á óhóflega neyslu áfengis og skaða af völdum þess. Niðurstaðan er sú að sterkar vísbendingar benda til þess að áfengissala og óhófleg neysla áfengis aukist í kjölfar einkavæðingar á sölu áfengis. Ríkisrekstur á sölu áfengis stuðlar að minni skaðsemi en ef salan er gefin frjáls. Stýring stjórnvalda á áfengissölu í verslunum er ein árangursríkasta leiðin til að minnka óhóflega neyslu og fækka dauðsföllum og skaðsemi af völdum áfengis.

Árið 2010 var gerð rannsókn á mögulegum afleiðingum þess að leggja niður einkaleyfi ríkisins á sölu áfengis í Svíþjóð og taka upp frjálsa verslun. Tvö tilfelli voru tekin fyrir. Í fyrsta lagi að skipta út einkaleyfi ríkisins fyrir aðrar einkareknar verslanir með áfengissöluleyfi og í öðru lagi að leyfa áfengissölu í matvöruverslunum. Fyrra tilfellið er talið skila 17% aukningu í áfengisneyslu sem myndi auka tilfelli dauðsfalla um 770, líkamsárása um 8.500 og veikindadögum myndi fjölga um 4,5 milljónir á ári — og þetta er Svíþjóð. Seinna tilfellið er talið skila 37,4% aukningu í áfengisneyslu sem myndi auka dauðsföll um 2.000, líkamsárásir um 20.000 og veikindadögum myndi fjölga um 11,1 milljón á ári.

Nefna má einnig rannsókn frá 2011 um aukna áfengisneyslu í kjölfar einkavæðingar og er samantekt á 17 rannsóknum. Niðurstaðan gaf til kynna að 44% aukning verði á sölu áfengis á mann við einkavæðingu. Ein af þeim rannsóknum sem hægt er að skoða á vef embættis landlæknis er bandarísk rannsókn frá árinu 2013 um tengsl áfengisneyslu og hagvaxtar í Bandaríkjunum. Niðurstaðan er sú að aukning á áfengisneyslu er tengd við minni hagvöxt og minnkun á áfengisneyslu tengd við aukinn hagvöxt. Hækkun á áfengisskatti eykur hagvöxt.

Svo virðist vera að þeir sem tala hæst um aðhald í ríkisrekstri og mikilvægi aukins hagvaxtar vilji líka endilega áfengi í matvörubúðir eða sérverslanir með matvöru, þó að allar virtar rannsóknir sýni að það hefur einmitt aukinn kostnað ríkisins í för með sér og minni hagvöxt. Mér finnst þetta vera skringilegar mótsagnir.

Efling heilbrigðiskerfisins er forgangsmál, ekki aukið aðgengi að áfengi sem mun auka kostnað við heilbrigðiskerfið sem við höfum verið í basli með að fjármagna.

Lára G. Sigurðardóttur, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, skrifar á baksíðu Fréttablaðsins þann 11. mars síðastliðinn pistil undir yfirskriftinni Ölþingi. Þetta skrifaði Lára, með leyfi forseta:

„„Það er þá satt sem þú hefur bent á – maður drekkur meira áfengi þegar það er svona auðvelt að kaupa það,“ sagði maðurinn minn um daginn. Við höfum nú dvalið í Kaliforníu þar sem áfengi er selt víða í verslunum.

Mér varð hugsað til þessara orða nú þegar áfengisfrumvarpið er til umræðu í ellefta sinn á Ölþingi okkar Íslendinga. Rökstuðningur flutningsmanna frumvarpsins um að einkavæða áfengissölu og að leyfa áfengisauglýsingar er alls ekki með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.

Hér eru nokkur af þeim atriðum sem Ölþingismenn nefndu: íslenskir bjórframleiðendur þurfa að græða meira; aðgengi er svo mikið að við getum alveg eins aukið það meira; fyrst sumir brjóta áfengislögin þá skulum við bara afnema þau; leggjum áherslu á áfengisforvarnir næstu fimm árin því áfengisvandinn mun aukast með frumvarpinu; „áfengismenningin“ þarf að komast á hærra plan; svo skulum við ekki hafa vit fyrir öðrum, og síðast en ekki síst; þá mun fræðsla til almennings leysa öll vandamál.

Ef frumvarpsmenn hefðu lesið sér til þá vissu þeir að fræðsla dugar skammt í áfengisforvörnum og að það eru einmitt aðgerðir stjórnvalda eins og að takmarka aðgengi og sýnileika sem skila mestum árangri. Er þetta ekki komið gott eða þurfum við að setja áfengisfrumvarpsbann á Ölþingi?

Sjálf get ég þulið upp neikvæðar afleiðingar áfengisneyslu en samt drekk ég meira en skynsemin segir mér. Ég skammast mín fyrir að segja það en svona getur maður verið ófullkominn. Ég leyfi mér samt að segja þetta því ég veit að ég er ekki ein um að fara ekki alltaf eftir því sem ég veit að er mér fyrir bestu.“

Tilvitnun í Láru G. Sigurðardóttur lýkur og ég vil taka undir öll hennar orð.

Forseti. Verið er að leggja til aukið aðgengi að áfengi hér á landi sem allar rannsóknir sýna — allar — að mun aðeins leiða til aukinnar neyslu. Aukin neysla þýðir aukið álag á heilbrigðiskerfið, og ekki bara á heilbrigðiskerfið heldur líka á löggæsluna. Frumvarpið hefur ekki verið metið út frá hag barna eins og við hér höfum þó undirgengist að gera með því að skrifa undir og lögfesta barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það mun einnig hafa áhrif á kynbundið ofbeldi.

Ég vil líka nefna rannsóknir þar sem fjallað er um hvernig draga megi úr lífsstílssjúkdómum, þar á meðal að lækka tíðni krabbameina. Eitt af því er að hefta aðgengi að áfengi vegna þess að áfengi veldur krabbameini ef neyslan er of mikil, alveg frá koki niður í endaþarm. Allar rannsóknir segja að það sem helst hefur áhrif á neyslu áfengis er aðgengi — og verðið á áfengi einnig.

Ég vil í lokin, forseti, hvetja hv. þingmenn að líta til rannsókna þegar þeir gera upp hug sinn varðandi afgreiðslu frumvarpsins, læra af reynslu annarra og auka ekki vanda svo sem löggæslu og heilbrigðiskerfisins og samfélagsvanda með því að samþykkja frumvarpið, sem ég leyfi mér að segja að er ekki það sem þjóðin er að biðja um. Ég kannast ekki við að nokkur sé að kalla eftir þessu frumvarpi, nema þá kannski flutningsmenn og fulltrúar verslunarinnar í landinu.