149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:25]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég hlustaði á flutningsmann þessa frumvarps mæla fyrir því og hann lagði sérstaka áherslu á að sjónarhornið væri viðskiptalegs eðlis, ekki lýðheilsulegs. Viðskiptafrelsið skipti þarna mestu máli. Það hefur ekki verið metið hvað það muni kosta ríkissjóð verði frumvarpið að lögum. Það hefur heldur ekki verið metið, eins og ég gat um í ræðu minni, hvaða afleiðingar það hefði fyrir börnin í landinu. Þó hlýtur sú nefnd sem vinnur með frumvarpið að þurfa að taka það hvort tveggja fyrir, hvað frumvarpið muni kosta ríkissjóð og hvaða áhrif það muni hafa á börnin í landinu. Við þurfum að gera hvort tveggja.