verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún kom inn á margt og einmitt þetta með áhrif skatta á sölu á áfengi og hvað það er sem skiptir máli. Við erum búin að ræða þessi mál nokkuð oft hér í þingsal.
Mér finnst líka áhugavert þegar talað er um þau þjóðfélagslegu skilaboð sem verið er að senda. Í mínum huga er það ákveðin normalísering þegar við förum að auglýsa áfengi, þegar við höfum aukið framboð í búðum og fólk fer að fara með börnin sín, þegar það verður normalt en ekki undantekning, ef maður getur orðað það sem svo. Eins og hefur komið fram hefur landlæknir sagt að það verði ekki aftur snúið ef við förum þennan veg. Við sjáum einmitt áhrifin á hinum Norðurlöndunum þar sem þau eru gríðarleg og erfitt að snúa til baka þrátt fyrir það.
Mér finnst líka áhugavert þegar rætt er um heilsufarslegar afleiðingar af áfengisnotkun. Það kom fram hjá SÁÁ, held ég, einhvern tímann að þessi 85% sem teljast ekki vera alkóhólistar mæta samt kannski ekki í vinnuna á mánudögum vegna timburmanna eða eitthvað slíkt. Það er auðvitað kostnaður sem fyrirtæki verða fyrir og kom fram í ritgerð Ara Matthíassonar að hann taldi kostnaðinn vera um 50 milljarðar.
En ég ætlaði eiginlega að ræða allt annað. Mig langaði til þess að velta upp með þingmanninum þeim áhyggjum sem ég hef haft vegna þess að í hinum dreifðu byggðum þar sem er kannski ein matvöruverslun erum við með ungt fólk við afgreiðslu, það er bara staðan sem við stöndum frammi fyrir, og hefur jafnvel ekki aldur til að selja áfengi. Það er kannski einn fullorðinn á vakt og jafnvel baka til eða eitthvað slíkt. Þá er það félagaþrýstingurinn. Ég hef haft miklar áhyggjur af því að félagaþrýstingur gæti orðið til þess að þau stæðust ekki að afgreiða áfengi til vina sinna.