149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[18:31]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Ég var einmitt að rifja upp grein sem er úr bókinni The Health of Populations: Beyond Medicine eftir Jack James, sem er sálfræðingur. Það var viðtal við hann í kringum það þegar þetta mál var lagt fram á sínum tíma þar sem er spurt um ábyrgð og hvort hún sé á herðum okkar allra. Hann talar þar um að það sé ábyrgð sveitarfélaga, borga, bæjarstjórna, ríkisstjórna, það eigi allir að skipta sér af þessu. Hann fer einmitt yfir reykingarnar og hvaða áhrif það hafði þegar annars vegar var verið að banna og hins vegar að gera undantekningar. Hann minnist á tóbaksfyrirtækin sem fengu sínu framgengt í Danmörku. Þar undir voru þessi blessuðu einstaklingsfrelsisrök. En öðruvísi var það í Svíþjóð, þar var þveröfug stefna tekin. Hann fer aðeins inn á heilsu borgaranna og segir að dauðsföll vegna lungnasjúkdóma séu helmingi fleiri í Danmörku en í Svíþjóð og að danskar konur séu í mestri hættu á að látast úr lungnakrabbameini í Vestur-Evrópu. Þetta eru svipaðar þjóðir hvað líffræðilega þætti varðar þannig að hann vildi meina að tóbakið væri eini munurinn. Hann telur að við eigum alls ekki að breyta þessum lögum og vísar til Bretlands, eins og við höfum gert hér, þar sem fjöldi tilvika um skorpulifur hefur fjórfaldast síðan þetta var gert heimilt. Hann fer töluvert vel ofan í þetta. Mér finnst þetta áhugaverð nálgun hjá honum og svo mörgum öðrum þar sem hefur verið sýnt fram á hið sama. Það er áhugavert að þetta sé einmitt rætt innan Norðurlandaráðs af því að þar er fólkið allt af norrænum uppruna.

En af því að við höfum verið að ræða hér þungt og erfitt mál, þungunarrof, langar mig að nefna dæmi sem kölluð hafa verið jaðardæmi og hafa verið uppi á borðum, t.d. að kona megi jafnvel ekki fara í þungunarrof, (Forseti hringir.) þrátt fyrir ástandið, ef það eru komnar 22 vikur. Þetta er meðal þeirra raka sem hafa komið fram hjá mjög (Forseti hringir.) mörgum um samlegðaráhrif allra þessara þátta sem við höfum rætt.