149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[19:00]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Af því að hún minntist á landsbyggðina, og hún þekkir náttúrlega til þar, langar mig að spyrja hvort hún telji líklegt að einkaaðili myndi setja upp áfengisútsölu, t.d. á Patreksfirði, Þingeyri eða í Bolungarvík, þar sem 100 tegundir af áfengi yrðu á boðstólunum líkt og ÁTVR hefur nú að lágmarki. Ég spyr hvort hún telji líklegt að breyting eins og sú sem hér er lögð til yrði til þess að auka úrvalið í hinum dreifðu byggðum og bæta þjónustuna við þá sem búa austan Elliðaáa og fyrir ofan Kollafjörð.