verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr um vöruúrval og aðgengi úti á landsbyggðinni. ÁTVR hefur útibú á Hólmavík sem og á Ísafirði, Patreksfirði og jafnvel á fleiri stöðum á Vestfjörðum, ég man það ekki, en í Búðardal er ágætisúrval. Úrvalið er kannski mest á Ísafirði þar sem markaðurinn er stærstur. Ég get ekki séð að verslunin á Patreksfirði yrði með það vöruúrval sem í boði er í útibúi ÁTVR þar. Ég get ekki séð að menn myndu leggja sig fram um það. Maður getur líka farið inn í ÁTVR á Ísafirði og pantað áfengi sem ekki er í boði þar en er til hjá ÁTVR í Reykjavík.