149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[19:36]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Vísan verður sjálfsagt aldrei of oft kveðin þegar maður brennur heitt fyrir einhverjum málum. Ég vitnaði áðan í bók sem heitir The Health of Populations: Beyond Medicine sem dr. Jack James, prófessor og sálfræðingur, skrifaði fyrir ekki svo löngu síðan. Þar fjallar hann almennt um heilbrigðisþjónustu og hvaða kostnað heilbrigðisþjónustan ber af ýmsum þáttum og hvort hægt sé og gagnlegt að líta á málin frá ýmsum sjónarhornum. Hann tekur sem dæmi slys og hvað orsakar þau og segir, með leyfi forseta:

„Við þurfum að skoða þá þætti sem orsaka slysin. Það er augljóst að það er aðeins örlítill hluti slysa sem rekja má til lífeðlisfræðilegra þátta. Næstum öll slys verða vegna hegðunar eins og hraðaksturs, ölvunaraksturs, farsímanotkunar, að nota ekki bílbeltið, þreytu og svo mætti lengi telja.“

Hann segir að það sé auðvelt að hafa áhrif á þessa þætti með löggjöf. Mér fannst áhugavert að lesa þetta. Ég vitnaði í andsvari mínu áðan til þess sem hann segir um samanburð á Svíþjóð og í Danmörku. Hann horfir auðvitað á fjármunina sem við veitum í þessi kerfi og talar líka um lífsstílssjúkdóma og ýmislegt fleira. Hann veltir því upp hvort við berum öll ábyrgðina og eins og ég sagði áðan er hún kannski á herðum fleiri eins og t.d. sveitarfélaga, bæjarstjórna og ríkisstjórna. Hann tekur dæmi um reykingar. Við getum auðvitað tekið ákvörðun um að hætta að reykja en svo erum við í samfélagi sem hefur tekið ákvarðanir sem byggðar eru á því hvað er að gerast í kringum okkur. Ef ákveðin hegðun er algeng er líklegra en ella að við hegðum okkur með sambærilegum hætti. Ég tók dæmi um tóbaksnotkun af því að við höfum náð gríðarlega góðum árangri í að minnka hana. Hvernig gerðum við það? Við byrjuðum á því að banna tóbaksnotkun mjög víða. Við bönnuðum hana. Það er nú talað um að boð og bönn verði til þess að starfsemin færist neðan jarðar eða eitthvað slíkt, hún færist til, en það hefur ekki gerst. Það hefur dregið úr reykingum. Tóbak má ekki sjást lengur. Tóbaksfyrirtækin börðust hart gegn þessum bönnum, eins og ég sagði áðan, t.d. í Danmörku og fengu sínu framgengt þar en í Svíþjóð fór það algjörlega á hinn veginn eins og hjá okkur. Mismunurinn hefur sýnt sig í því að dauðsföll vegna lungnasjúkdóma eru helmingi fleiri í Danmörku en í Svíþjóð. Það er talið að það megi rekja fyrst og fremst til þessara breytinga.

Þegar prófessorinn er spurður hvort við eigum að selja áfengi í matvöruverslunum tekur hann undir með okkur sem erum því ósammála og segir:

„Ef fólk vill taka upplýsta ákvörðun um málið sem er byggð á niðurstöðum rannsókna er þetta einfalt mál. Aukið aðgengi að áfengi þýðir einfaldlega fleiri sjúklinga með t.d. skorpulifur og meira heimilisofbeldi.“

Hann nefnir að tíðni skorpulifrar hafi fjórfaldast í Bretlandi síðan meira frelsi var gefið þar í áfengissölu. Þetta er í rauninni sama sjónarmið og ég viðraði með tóbakið. Þetta er auðvitað, eins og við vitum, allt á forsendum verslunarinnar enda hvernig getum við mælt gegn þessum vísindalegu niðurstöðum?

Í lögunum er það svo, eins og hér hefur margítrekað komið fram og var sagt rétt á undan í andsvari, að við höfum allt það aðgengi sem við þurfum á að halda. Það sem við eigum kannski að horfa frekar til er að við höfum tækifæri til að sýna frumkvæði á heimsvísu með því að hafa gott aðgengi að áfengi sem er háð ákveðnum og sanngjörnum takmörkunum sem felast í því fyrirkomulagi sem við höfum núna.

Það er þekkt, og það verður ekkert öðruvísi hjá okkur, að ef við slökum á þessum skilyrðum er heilsufarið líklegra til að verða verra sem og félagsleg staða og fjárhagsleg. Það gildir líka fyrir alla, líka þá sem drekka ekki áfengi. Við megum ekki gleyma þeim sem eru í kringum þá sem neyta áfengis í óhófi. Besta leiðin til að bæta heilsuna er að hafa áhrif á hegðun fólks og það sparar líka peninga í heilbrigðiskerfinu þegar fram í sækir.