verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilega ræðu. Ég er í sjálfu sér á svipuðum slóðum og hv. þingmaður vegna þess að við höfum öndvegisheilbrigðiskerfi á Íslandi og við höfum náð gríðarlegum árangri í áfengismeðferð. Samt bíða 600 manns eftir áfengismeðferð núna að staðaldri. Ætlum við að bæta í þann fjölda?
Núna ætlum við að eyða ógrynni fjár í að byggja nýtt þjóðarsjúkrahús. Það er reyndar á röngum stað, en látum það liggja á milli hluta.
Ætlum við sem sagt að auka á vanda þess sjúkrahúss og annarra með því að auðvelda aðgengi að áfengi?
Af því að hv. þingmaður minntist á tóbak og hvernig við höfum breytt tóbakssölu undanfarin ár má nefna að við erum nýbúin að gera tilraun hér á Alþingi sem ég á von á að komi okkur í koll, þ.e. að opna fyrir meiri sölu á veipi. Við eigum alveg eftir að sjá hvaða afleiðingar sú tilhliðrun hefur í för með sér. Það kann vel að vera að þeir sem verða á þingi eftir 20 ár muni skamma okkur og bölva í sand og ösku fyrir að hafa gert það.
Þess vegna segi ég, og það hefur svo sem einnig komið fram hjá hv. þingmanni, að það sé ekki verjandi að leggja á þessar auknu byrðar, sem við teljum okkur vita um og höfum sæmilega vissu um að fylgja muni aukinni áfengisneyslu, á heilbrigðisstofnanir okkar.
Ég vil spyrja hv. þingmann að lokum hvort hún sé mér sammála um að það eigum við ekki að gera, þ.e. að henda fjárhagslegum byrðum inn í framtíðina á hjúkrunarstofnanir okkar og heilbrigðisstofnanir. Einnig þætti mér fróðlegt að heyra hvað hv. þingmaður hefur að segja um kenningar mínar um hvort við höfum stigið rangt skref með því að leyfa veip.