149. löggjafarþing — 100. fundur,  6. maí 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[19:55]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Niðurstaða þingmannsins er því sú að þjónusta við íbúa á landsbyggðinni muni að öllum líkindum versna og verð mögulega hækka. Nú hefur verið farið með rökum í umræðunni yfir afleiðingar af auknu aðgengi. Rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi og aukinn sýnileiki áfengis í verslunum muni leiða til aukinnar neyslu. Auðvitað getum við ekki stjórnað neyslu hvers og eins. Það verður hver að ákveða hvort hann drekki rauðvín eða svona vín eða hitt vínið og hversu mikið hverju sinni. Engu að síður sýna rannsóknir fram á að aukið aðgengi og aukinn sýnileiki leiðir til aukinnar neyslu. Við vitum einnig að aukin neysla áfengis veldur heilsutjóni, slysatíðni eykst og sjúkdómar aukast, fyrir utan oft alls kyns félagslega slæmar afleiðingar sem aukin áfengisneysla og neysla í óhófi veldur.

Þetta virðist allt bera að sama brunni. Kostirnir við að breyta kerfinu eru sárafáir, ef einhverjir. Ókostirnir eru óteljandi og grafalvarlegir, aukinn kostnaður fyrir samfélagið í heilbrigðisþjónustu, löggæslu og öðru, í áfengismeðferðum og hvað þetta allt heitir. Augljóslega græðir verslunin á þessu og mögulega þeir sem hanna og selja auglýsingar og annað.

Mig langar því til að spyrja þingmanninn: Er hún sammála mér um þetta? Glittir í einhverja kosti við að breyta núverandi kerfi og hverjir eru þeir?