störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs til að vekja athygli á þingsályktunartillögu sem dreift var í gær og við flytjum allir þingmenn Suðurkjördæmis. Tillögugreinin er einföld:
„Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að láta hefja nú þegar óháða úttekt á Landeyjahöfn í samræmi við samgönguáætlun fyrir árin 2019–2033 og fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019–2023 og að henni verði lokið eigi síðar en 31. desember 2019.“ — Það er sem sagt í árslok.
Ég er ekki viss um að þingheimur geri sér almennt grein fyrir því að þegar Landeyjahöfn var opnuð í síðustu viku þá hafði hún verið lokuð í fimm mánuði og rúmlega það, á sjötta mánuð, tveimur mánuðum lengur en var t.d. í fyrra. Það er algjörlega nauðsynlegt og fyrir löngu tímabært að svarað verði þeim þremur spurningum sem þessi þingsályktunartillaga lýtur að og eru tilgreindar í greinargerð með tillögunni.
Í fyrsta lagi: Er hægt að gera þær úrbætur á Landeyjahöfn að dýpkunarþörfin minnki verulega eða hverfi? Í öðru lagi: Í hverju fælust slíkar úrbætur og hver er áætlaður kostnaður við þær? Í þriðja og síðasta lagi: Ef slíkar endurbætur þættu ekki gerlegar, af tæknilegum ástæðum eða fjárhagslegum, til hvers konar dýpkunaraðgerða þyrfti þá að grípa til að halda höfninni opinni allan ársins hring?
Ég treysti því að þingheimur og raunar hæstv. forseti tryggi þessu þarfa máli skjóta leið í gegnum þingið.