149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Í gær fékk ég tækifæri til að skoða mannlausa flugvél sem hefur verið í prófunum á Egilsstaðaflugvelli í nokkrar vikur og verður hér á landi fram á sumar. Þessi mannlausa flugvél sem er af tegundinni Hermes 900 er hér á vegum Siglingaöryggisstofnunar Evrópu. Tilgangurinn er að prófa þennan dróna eða mannlausu flugvél við erfiðar aðstæður.

Eins og hefur komið fram í viðtölum við forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar þá bera Íslendingar ábyrgð á gríðarstóru hafsvæði og umferð í kringum landið fer vaxandi. Mér segir svo hugur um að mannlausa flugvélin sem nú er á Egilsstaðaflugvelli sé forsmekkurinn að því sem koma skal á næstu árum. Hafsvæðið í kringum Ísland er gríðarstórt og slíkar vélar gætu nýst vel til eftirlits- og björgunarstarfa. Að auki má nefna ýmis rannsókna- og vísindastörf sem tengjast Íslandi og hafsvæðinu í kringum landið. Reyndar er flugþol mannlausra flugvéla allt að tæpir tveir sólarhringar og þær gætu því farið býsna víða hér á norðurhvelinu í rannsóknarstörfum.

Í þessu samhengi tel ég rétt að minnast enn á ný á tengt mál sem er að við Íslendingar gerumst sem allra fyrst aðilar að Geimvísindastofnun Evrópu og verðum fullgildir aðilar að því vísinda- og rannsóknarumhverfi sem þar er innan búðar og að sem fullkomnasta gervihnattaleiðsaga sem til er verði í boði hér á landi sem allra fyrst. Hér er ég að tala um þætti sem geta gegnt mikilvægu hlutverki í öllum samgöngum í framtíðinni, hvort sem þær eru í lofti, láði eða legi. Ég tel mikilvægt að í þeirri fjarskiptaáætlun sem unnið er að þessa dagana hér í þinginu og í endurskoðaðri samgönguáætlun sem boðað er að komi fyrir þingið í haust, verði tekið á þessu máli með ákveðnum hætti sem aðild að Geimvísindastofnun Evrópu er.