149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að eyða þessum stutta tíma mínum í að vekja athygli á því átaki sem nú fer fram í samfélaginu af hendi SÁÁ. Bankað verður upp á hjá landsmönnum úti um allt land og óskað eftir stuðningi þeirra með því að kaupa hinn svokallaða álf. Ég hvet ykkur öll til að styðja við SÁÁ því að það er sannarlega ekki nóg að gert hjá hæstv. heilbrigðisráðherra í þeirri heilbrigðisstefnu sem hér er. Þrátt fyrir að fjárveitingavaldið Alþingi hafi aukið fjárheimildir sínar og viljað styrkja SÁÁ og starf þeirra um 150 millj. kr. í desember sl., þrátt fyrir að búið sé að semja við Sjúkratryggingar Íslands og þeir hafi ákveðið að 100 milljónir af því færu í göngudeildir — sem nota bene hafa verið fjármagnaðar með sölu álfsins, sjálfsaflafé SÁÁ hefur haldið uppi veg og vanda göngudeilda — þrátt fyrir að búið sé að skila inn öllu er ekki enn þá búið, virðulegi forseti, að greiða út eina einustu krónu.

Ég er að verða svo rasandi og algjörlega bit að ég er eiginlega orðlaus yfir þessari ótrúlegu framkomu. Það er eins og Sjúkratryggingar Íslands séu að verða ríki í ríkinu. Það virðist engu máli skipta hvað fram fer á hinu háa Alþingi hjá löggjafanum, hjá fjárveitingavaldinu og hvaðeina annað. Þeir gjörsamlega trampa það niður og gera akkúrat ekkert með það.

Þannig að ég segi: Takið vel á móti fólkinu okkar frá SÁÁ. Hjálpum fíklunum okkar að komast fyrr í meðferð. Hjálpumst að við að eyða biðlistum inn á Vog því að það er hagur okkar allra.