störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fram undan eru þinglok og hefðbundið brjálæði í afgreiðslu mála. Af því tilefni langar mig til að fara yfir smá tölfræði um afköst þingsins með þeim fyrirvara að fjöldi mála segir ekkert til um gæði þeirra, eins og dæmið um Landsrétt ætti að sýna.
Frá 138. þingi hafa að meðaltali tæplega 112 ríkisstjórnarmál og tæplega 14 þingmannamál, 126 í heild, verið samþykkt á hverju þingi. Stundum eru haldin sumarþing og stutt þing af öðrum ástæðum. Ef þau þing eru ekki talin með eru rúmlega 132 mál samþykkt á hverju þingi.
Á yfirstandandi þingi er búið að afgreiða 82 mál, 75 ríkisstjórnarmál og sjö þingmannamál og við eigum u.þ.b. 50 mál eftir til að ná meðaltalinu. Flest mál voru afgreidd á 139. þingi eða 190 mál, fæst á 147., einungis þrjú. Ef tekin eru frá stutt þing voru fæst mál samþykkt á 141. þingi eða 123.
Það getur aldrei verið kappsmál þingsins að afgreiða fleiri mál en færri. Krafan hlýtur alltaf að vera fagleg afgreiðsla á málum sem hagnast íslensku samfélagi, því fleiri slík mál, þeim mun betra.
Þess vegna langar mig að minnast á 28 mál Pírata sem bíða enn eftir því að komast til 1. umræðu. Þess vegna langar mig að minnast á athugasemd Sambands sveitarfélaga sem kom fram í fjárlaganefnd í gær, að mál sem var lagt fram í september hefur ekki enn komist til 1. umr., mál sem samtökin töldu vera þjóðþrifamál, bókstaflega, mál sem snýst um fráveitumál sveitarfélaga. Þetta þing hefur verið einstaklega lélegt í að koma þingmannamálum í umræðu miðað við að þingmannamál sem eru lögð fram í upphafi þingsins í september hafa ekki enn komist til 1. umr.
Ég býst við að þetta þing verði með ágætistölur um afköst, en þegar kemur að því hversu mörg þjóðþrifamál eru hins vegar skilin eftir í þingmannahalanum, þá gef ég yfirstandandi þingi ekki háa einkunn.