störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag birtist skoðanakönnun í Fréttablaðinu um skoðanir landsmanna á því máli sem er mikið til umræðu hér í þinginu þessa dagana, þriðja orkupakkanum. Ekki er það hlutverk stjórnmálamanna að elta skoðanakannanir en það er mikilvægt að hlusta á raddir fólks og meta hagsmuni heildarinnar. Slíkt hafa ráðherrarnir gert og margir þingmenn einnig.
Af skoðanakönnuninni má auðvitað lesa ýmislegt, m.a. að 40% tóku ekki afstöðu og hátt í 60% hafa ekki kynnt sér málið. Það var þó annað sem stakk mig sérstaklega í þessari skoðanakönnun, það var sú staðfesting að upplýsingar hafa mikil áhrif. Að jákvæðum gagnvart málinu fjölgar verulega eftir því sem fólk kynnir sér málið betur. Það kemur mér ekkert sérstaklega á óvart eða ætti ekki að gera það, en það sannar þó hið margkveðna að upplýsingar, réttar upplýsingar, skipta máli.
Vegna þessa máls hafa ráðherrar og þingmenn reynt eftir fremsta megni að koma upplýsingum á framfæri. Borið hefur árangur að funda um málið og útbúa spurningalista sem svarar ýmsum spurningum. Mesti krafturinn hefur þó því miður aðallega farið í að leiðrétta rangfærslur og síðan að halda því á lofti hvað felst í málinu og hvað felst ekki í málinu.
Það má líka horfa inn á við og velta fyrir sér hvort við hefðum getað gert betur í að upplýsa almenning um málið á fyrri stigum. Það er reyndar ekki alltaf auðvelt að vekja áhuga fólks á EES-málum. Það má svo reyndar líka að velta fyrir sér hversu langt við megum ganga í að reyna að koma á framfæri upplýsingum fólksins í landinu um mál sem búast má við að verði mikið í umræðunni. Það er nefnilega þannig að það er sífellt auðveldara að koma upplýsingum að fólki, en að sama skapi líka rangfærslum og villandi skilaboðum.
Nú keppast stjórnvöld við að leiðrétta slík skilaboð sem komið hefur verið á framfæri með að því er virðist miklum kostnaði, með auglýsingum á alls konar miðlum. Þessar rangfærslur eiga sér greinilega mikið fjárhagslegt bakland.
Það er kannski helsta áskorun nýrra tíma, fyrir okkur öll, að geta greint hismið frá kjarnanum, að geta greint milli falsfrétta, staðreynda og hvaðan upplýsingarnar koma. Nú stöndum við frammi fyrir þeirri áskorun að upplýsa, því að það er alla vega staðreynd að upplýsingar og þekking skipta miklu máli. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)