störf þingsins.
Herra forseti. Þann 9. apríl sl. vakti ég athygli á útvarpsþáttum sem hétu Kverkatak og voru á dagskrá Ríkisútvarpsins og fjölluðu um ofbeldi og ofbeldissambönd og það hversu erfitt getur verið fyrir þann sem fyrir ofbeldinu verður í slíku sambandi að losna úr því og að ofbeldi haldi áfram þegar verið er að reyna að ganga frá skilnaði. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvað væri hægt að gera til að bæta þetta ástand. Þó að maður hafi nú lært sifjarétt á sínum tíma í háskólanum var aðeins farið að fenna yfir það hversu torsótt það er og hvað löggjafinn leggur miklar hindranir í götu fólks sem getur ekki lengur búið saman í hjónabandi eða í staðfestri samvist. Þetta getur tekið mörg ár og sérstaklega þegar um ósamkomulag er að ræða eða að annar makinn er að kúga hinn, þá er hægt að draga þetta á langinn í ótrúlegan tíma.
Í framhaldi af þessu hef ég sett saman frumvarp sem miðar að því að stytta verulega þann tíma sem það tekur að fá lögskilnað og jafnframt að það sé í valdi annars aðilans í hjónabandinu að krefjast skilnaðar. Það eru miklir hagsmunir af því að þessi tími verði styttur mjög verulega. Þetta frumvarp verður lagt fram vonandi á næstu dögum þessa þings og er þjóðþrifamál.