149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Hún var áhugaverð, yfirlýsing ráðherra Norðurskautsráðsins frá því í gær. Eitt og annað var athyglisvert. En rétt er að fagna því að blessunarlega var talað um sjálfbærni og að gæta þurfi að umhverfi norðurskautsins. En hins vegar, og það vakti athygli mína, var ekkert um loftslagsmálin sem slík, algjört metnaðarleysi þegar kom að yfirlýsingu ráðherranna. Mér finnst það miður þegar Ísland er að taka við formennsku í Norðurskautsráðinu og ég veit að hæstv. utanríkisráðherra hefur verið að beita sér á þeim vettvangi með loftslagsmálin í huga, ekki síður en forsætisráðherra.

Eins og komið hefur fram eru loftslagsmálin eitt brýnasta verkefni samtímans. Og það er ekki hægt að leyfa stórþjóðum að ráða för þegar kemur að þessu þegar um svona mikið metnaðarleysi er að ræða. Við vitum alveg að þessi metnaðarlausa áhersla kemur frá Bandaríkjunum. Búið er að kúvenda í loftslagsmálum í Bandaríkjunum. Það hefur áhrif á það svæði sem er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga, mikilvægt fyrir Norðurlöndin. Þess vegna er mikilvægt að Íslendingar og hæstv. forsætisráðherra, umhverfisráðherra og utanríkisráðherra haldi mjög myndarlega utan um þetta mál.

Ég er minnug þess að Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom hingað nýlega. Þá var talað mjög mikið um að þjóðirnar hefðu styrk og stuðning hvor af annarri og það er alveg rétt. Það hefur verið svo í gegnum tíðina á öðrum sviðum, varnarmálum o.s.frv.

En síðan velti ég því fyrir mér þegar kemur að loftslagsmálunum: Var það þá allt saman skrautsýning? Því að það eru hagsmunir Íslendinga að hugað verði sérstaklega að loftslagsmálunum á norðurslóðum og á norðurskautinu.

Þannig að ég vil hvetja og brýna ráðherra ríkisstjórnar Íslands til að láta ekki þar við sitja með yfirlýsinguna frá því í gær. Við hljótum að beita okkur fyrir breytingum á þessari yfirlýsingu á formannstíma okkar og taka af meiri myndugleika og af meiri festu á loftslagsmálum en metnaður Bandaríkjanna stendur til. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)