störf þingsins.
Virðulegur forseti. Við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson róum á sömu mið í dag í umræðum um skilvirkni þingsins og afgreiðslu þjóðþrifamála. Enn og aftur er starfsemi smálánafyrirtækja til umfjöllunar í fjölmiðlum og í þjóðfélaginu, síðast í gær, og stutt er síðan þátturinn Kveikur vakti athygli á því ófremdarmáli.
Það sem vekur athygli mína og er ástæða þess að ég nefni þetta í störfum þingsins er að Oddný G. Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, lagði fram frumvarp til laga um starfsemi smálánafyrirtækja í september sl. og fékk í lið með sér þingmenn úr öllum flokkum sem ætluðu að taka á því máli. Frumvarpið hefur þó ekki komist á dagskrá og ekki líklegt að það verði á yfirstandandi þingi nema hv. þingmenn taki sig saman og óski eftir því. Það er mjög breið samstaða um málið og í janúar sl. skilaði starfshópur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja af sér vinnu sinni, en hópnum er ætlað að kortleggja umhverfi smálánafyrirtækja og bera það saman við lagalegt umhverfi í nágrannalöndum.
Niðurstaða hópsins er að hin eiginlegu smálán séu þau lán sem valda mestum vanda hjá neytendum. Þetta kemur ekki á óvart og stemmir við þær upplýsingar sem umboðsmaður skuldara setti fram í minnisblaði sínu til efnahags- og viðskiptanefndar í janúar 2018. Það er nóg til af gögnum og allir ættu að vera upplýstir um skaðsemi slíkra lána. Bæði hagsmunaaðilar og eftirlitsaðilar hafa lýst yfir miklum áhyggjum af uppgangi smálánafyrirtækja hér á landi en um er að ræða lán á okurvöxtum. Ýmis orð hafa verið notuð til að lýsa starfsemi fyrirtækjanna og hafa hv. alþingismenn notað t.d. þessi orð: Óforskömmuð starfsemi, smánarlán, óværa, fjárhagslegt ofbeldi.
Með frumvarpi hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur er lagt til að koma böndum á þá starfsemi með því að setja sérlög um hana. Þar með verði settur skýr rammi og tryggt að aðeins þeir aðilar geti fengið starfsleyfi sem uppfylli tiltekin skilyrði og starfi á grundvelli laga um neytendalán, um árlega hlutfallstölu kostnaðar. Oft er talað um að Alþingi sé ekki nógu skilvirkt. Í þessu máli og eflaust fleirum get ég tekið undir það. (Forseti hringir.) Hvernig stendur á því að ekki hefur verið tekið á málinu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)