149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég vil koma inn á mikilvægi íslensks landbúnaðar. Hér á Íslandi er stundaður heilnæmur landbúnaður og tíðni búfjársjúkdóma er brot af því sem þekkist annars staðar. Sýklalyfjanotkun í dýrum á Íslandi er sú minnsta í Evrópu. Við vitum það líka að landbúnaður er víða undirstöðuatvinnugrein á landsbyggðinni. Við framleiðum heilnæma matvöru sem er laus við sýklalyfjaónæmar bakteríur og sérstaða Íslands er að hér er lág tíðni af sýkingu af völdum kampýlóbakter, salmonellu og fjölónæmra baktería.

Þess vegna tel ég að það sé nauðsynlegt að gera sömu kröfu til erlendra framleiðenda við innflutning á matvöru og er gerð til innlendra framleiðenda, bæði varðandi rekjanleika, sýklalyfjanotkun og velferð dýra. Það hefur verið mikið í umræðunni undanfarið að sýklalyfjaónæmi er ein af stærstu ógnum sem heimsbyggðin glímir við. Hún er að breiðast mjög hratt út. Sýklalyf sem við notum mikið við alls kyns sjúkdómum, léttvægum sem og alvarlegri, hætta að virka með tilheyrandi afleiðingum.

Ég tel mjög mikilvægt að okkar landbúnaður sé samkeppnisfær og keppi á jafnréttisgrunni. Ég vil benda á það að í umhverfislegu samhengi skiptir máli hvar matvælin er framleidd. Það hefur verið talað um að við þurfum að draga úr kjötneyslu. Við þurfum að horfa til þess að við neytum þá kjöts, grænmetis og annarra afurða sem eru framleiddar í okkar nærumhverfi. Það getur líka verið okkar skerfur til umhverfismála.