149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Oft er kvartað undan svokölluðum pólitískum rétttrúnaði. Af einhverjum ástæðum virðist hugtakið yfirleitt notað um almenna velvild í garð útlendinga og er þá kenningin sú að það sé svo vinsælt að vera góður við útlendinga að stjórnmálamenn taki hagsmuni þeirra umfram hagsmuni sinna eigin kjósenda. Væri óskandi að fleiri hugsuðu til enda hversu fráleit sú kenning er. En það er reyndar alls ekki vinsælt að verja hagsmuni útlendinga. Það er þvert á móti mjög óvinsælt. Það er rétt að hér ríkir pólitískur rétttrúnaður en hann er sá að hagsmunir útlendinga séu í eðli sínu öndverðir hagsmunum Íslendinga, sem er efnislega rangt, að ekki eigi að hjálpa útlendingi meðan nokkur þurfi hjálp á Íslandi. Það er siðferðislega rangt.

Kvartanir yfir pólitískum rétttrúnaði í útlendingamálum virðast reyndar aðallega vera yfir því að fólk geti ekki sagt fullkomlega ógeðslega hluti um blásaklaust fólk án þess að fá fyrir það skammir. Slíkar kvartanir gera lítið úr raunverulegum pólitískum rétttrúnaði, því að það er í sjálfu sér alveg rétt að við þurfum að geta hafnað pólitískum rétttrúnaði, t.d. í útlendingamálum, en einnig í stærsta máli samtímans og framtíðarinnar, loftslagsbreytingum. Í því tilviki er það beinlínis lífsspursmál að storka pólitíska rétttrúnaðinum að geta fært hræðilegar fréttir, að boða breytingar sem koma illa niður á hagsmunum bókstaflega allra, einungis til að fyrirbyggja enn verri breytingar seinna.

Loftslagsbreytingar eru nefnilega eins og önnur málefni sem krefjast fórna, að flestir eru til í ferðalagið alveg þar til lagt er af stað. Þá kemur í ljós að fólk vill einfaldlega ekki færa þær fórnir sem þarf, og skiljanlega, því að loftslagsbreytingar krefjast fordæmalausra fórna og við þurfum að færa þær sjálfviljug.

En hver ætlar að standa hér í pontu og stinga upp á því að bensínverð verði svo hátt að það verði sjálfstætt vandamál hverrar einustu fjölskyldu? Hver ætlar að stinga upp á því að banna nautakjöt?

Ég tek skýrt fram að ég er ekki að leggja þessa hluti til hér og nú, en ef við náum ekki að lyfta fordæmalausu grettistaki í umhverfismálum á næsta áratug þurfa þessar hugmyndir að hætta að verða svo hneykslanlegar. Þá fyrst þurfa stjórnmálamenn að þora að segja — ekki það sem allir eru að hugsa heldur það sem enginn vill trúa og enn síður heyra, (Forseti hringir.) þá verður pólitískur rétttrúnaður vonandi meira til skammar en nokkru sinni fyrr.