um fundarstjórn.
Forseti. Ég kem upp til að bregðast við ræðu hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar í störfum þingsins áðan. Hv. þingmaður ýjar að því að þegar kemur að nýjum lögum um þungunarrof hafi einhver flýtimeðferð átt sér stað hjá velferðarnefnd þar sem hvorki var leyfð umræða, hún kæfð á einhvern hátt, né gestakomur. Mér finnst mikilvægt að fram komi að velferðarnefnd fjallaði mjög ítarlega um málið áður en það var afgreitt til 2. umr. Það voru níu fundir í nefndinni, 60 umsagnir, 62 umsagnarbeiðnir, 22 manns komu á fund nefndarinnar frá 13 aðilum. Það var engum neitað, engum nefndarmanni neitað um að fá gesti á fundinn og tekið tillit til beiðni allra nefndarmanna. Allir viðstaddir þingmenn samþykktu svo afgreiðslu málsins úr nefnd fyrir 2. umr. sem felur í sér að allir voru sammála um að málið hefði verið nægilega vel rannsakað. (Forseti hringir.) Þegar gestabeiðnin kom upp á fundi velferðarnefndar á milli 2. og 3. umr. var hreinlega ekki stuðningur við það af því að við töldum að málið (Forseti hringir.) hefði fengið næga umfjöllun. Við vorum búin að fá landlækni á fund nefndarinnar. (Forseti hringir.) Búið var að fjalla um það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)