149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

staða innflytjenda í menntakerfinu.

[14:11]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. málshefjanda, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, fyrir að koma hingað upp í ræðustól til að ræða menntamál og sér í lagi málefni barna með annað móðurmál en íslensku í skólakerfinu. Það er ljóst að þetta er ein af okkar helstu áskorunum í menntakerfinu vegna þess að staða þessa hóps er ekki eins góð og við hefðum kosið.

Ég sem ráðherra hef sett af stað umfangsmikla vinnu til að geta gert betur hvað þetta varðar. Við höfum sett á fót sérstakan starfshóp sem Jóhanna Einarsdóttir, prófessor í menntunarfræðum ungra barna, leiðir. Hópurinn mun móta heildarstefnu í málefnum barna með annað móðurmál en íslensku og kortleggja stöðu þessa hóps frá A til Ö. Þetta er í fyrsta sinn sem slík vinna hefur farið fram og er algerlega nauðsynleg þar sem fjöldi barna með annað móðurmál en íslensku hefur aukist mikið eins og fram kom í máli hv. þingmanns. Í hópnum eru helstu hagsmunaaðilar og bind ég miklar vonir við að þessi vinna muni skila okkur mjög góðri stefnumótun.

Hv. þingmaður spyr út í PISA-könnunina og það að lesskilningur nemenda með annað móðurmál en íslensku mælist talsvert minni en meðaltalið hjá OECD-ríkjunum. Því er til að svara að í þessari vinnu erum við að skoða alla þá þætti sem geta stutt við kennaramenntun í háskólum. Í þingsályktunartillögu um að efla íslenskuna er lagt til að áhersla verði lögð á að auka hæfni kennara í íslensku og að þeir hafi tök á fjölbreyttum kennsluháttum til að kenna íslensku, bæði sem móðurmál og sem annað mál.

Skólarnir sjálfir ákveða hvaða námskeið eru kennd í kennaranámi. Á menntavísindasviði Háskóla Íslands er nú þegar kennt skyldunámskeið um læsi og lestrarkennslu þar sem fjallað er um áhrif tvítyngis á mál og læsi. Lögð er áhersla á hæfni kennara til að vinna með margbreytilegan nemendahóp, m.a. nemendur með annað móðurmál en íslensku. Frá og með næsta hausti verður boðið upp á kennslu í íslensku sem öðru máli sem kjörsvið á meistarastigi í grunnskólakennaranámi. Námið verður í boði bæði fyrir verðandi kennara og starfandi kennara. Vonir standa til að nýtt kjörsvið komi til móts við vaxandi þörf fyrir sérhæfingu í kennslu íslensku sem annars tungumáls.

Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu er unnið að fleiri verkefnum til að bæta þjónustu við börn með annað móðurmál en íslensku og eins og ég nefndi hefur átt sér stað og er að eiga sér stað þessi heildarstefnumörkun. Mig langar til að nefna hér sjö þætti.

Í fyrsta lagi er það auðvitað þingsályktunartillagan um eflingu íslenskunnar. Þar er lagt til að þeir sem búsettir eru á Íslandi og hafa annað móðurmál en íslensku, börn jafnt sem fullorðnir, fái viðeigandi og jafngild tækifæri til íslenskunáms og stuðning í samræmi við þarfir sínar. Einnig verður unnið að auknu framboði á námskeiðum og námsefni á öllum stigum. Góð færni foreldra í íslensku getur að sjálfsögðu stutt við frekara nám barna þeirra þannig að það þarf bæði að huga að börnunum og foreldrum þeirra.

Í öðru lagi er fylgst með þróun sveitarfélaga á kortlagningu eða stöðumati sem lagt er fyrir börn með annað móðurmál en íslensku á fyrstu tveimur mánuðum eftir komu til landsins. Matinu er ætlað að skýra bakgrunn og kortleggja námslega stöðu. Stöðumatið hefur verið þýtt úr sænsku og er tilbúið fyrir grunn- og framhaldsskólann en enn er unnið að þýðingu á mati fyrir leikskólabörn. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt stöðumat verður lagt fyrir börn með annað móðurmál en íslensku.

Í þriðja lagi mun endurskoðun fara fram á kafla um íslensku sem annað móðurmál í aðalnámskrá grunnskóla og endurskoðun á aðalnámskrá leikskóla hvað sama nemendahóp varðar.

Í fjórða lagi hvað varðar framhaldsskólann þá er lögð áhersla á að minnka brotthvarf og við höfum nefnt það sem eitt af aðalmarkmiðunum í fjármálaáætlun. Framhaldsskólarnir vinna að sjálfsögðu að því að minnka brotthvarf allra nemenda en starfshópurinn um heildarstefnumörkun sem vinnur að kortlagningu á stöðu nemenda með annað móðurmál en íslensku leggur sérstaka áherslu á þetta. Þess má til gamans geta að við þrefölduðum í fyrra framlag til sérstakrar íslenskukennslu fyrir nemendur með annað móðurmál og það urðum við að gera til þess að mæta þörfum þessara nemenda enn frekar.

Í fimmta lagi er unnið að því að bæta tölfræðigreiningar á brotthvarfi nemenda með annað móðurmál en íslensku og í sjötta lagi er skilgreint fjárframlag í reiknilíkani framhaldsskóla sem ætlað er að auðvelda skólum að styðja við nemendur í brotthvarfshættu.

(Forseti hringir.) Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir því að við munum eiga hér mjög uppbyggilegt samtal um þessa stefnumörkun og hvar við getum gert til að bæta íslenskt menntakerfi.