149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

staða innflytjenda í menntakerfinu.

[14:24]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vil nefna í samhengi við þessa umræðu að fyrir einhverjum árum sagði mér útlendingur sem vildi setjast hér að, að hann hefði menntun sem smiður en gæti ekki fengið hana metna á Íslandi vegna þess að hér væru öfl sem stæðu gegn því að slík menntun yrði metin. Hann þyrfti að fara aftur í nám í því sem hann var sérmenntaður í og byrja í því alveg á núllpunkti.

Þetta eru nokkur ár síðan ég heyrði þessa sögu og ég veit ekki hvort þetta er enn þá svona. Ég vil bara fá að lýsa því yfir að ef þetta er rétt þá er það mannvonska og ekkert annað, að rífa af fólki það erfiði sem það hefur lagt í menntun sína nú þegar. Mig langaði bara að henda þessu fram hér vegna þess að við erum að ræða menntun útlendinga.

Mikil áhersla hefur verið lögð á íslenskukennslu, sem er jákvætt. Það er jákvætt að við viljum halda í íslenska tungu. Og sömuleiðis skiptir það útlendinga máli að kunna íslensku nógu vel til að geta notað hana hérna í samfélaginu og gagnvart yfirvöldum og öllum. En mér finnst samt mjög mikilvægt að við nálgumst þetta málefni út frá því hvernig eflum við menntun þessa fólks en ekki hvernig við fáum það til þess að tala íslensku. Það eru tvö ólík markmið. Við viljum auðvitað að sem flestir læri íslensku, en það er okkar markmið. Við verðum líka að hugsa um markmið nemendanna, að læra og komast inn í samfélagið, og íslenskukennsluna einungis sem hluta af því markmiði í því samhengi, en ekki öfugt.

Hæstv. ráðherra og aðrir hafa nefnt fleiri hluti. Mér finnst bara mikil áhersla vera á íslenskukennslu og ég óttast að fólk nálgist hana út frá þeim hagsmunum að halda í íslenska tungu frekar en að mennta börn. Í þessari umræðu er fyrrnefnda markmiðið að mínu mati ekki aðalatriðið.

Tíminn líður hratt nú eins og áður. Það er mikilvægast, held ég, að sér í lagi börn og unglingar sem koma hingað og tala ekki væntanlega ekki íslensku, og ekki endilega góða ensku, upplifi sig velkomin, að þau séu ekki afgangsstærð, að þau séu ekki vandamál, heldur að kerfið okkar sé hugsað til að taka vel utan um þau og bjóði þau velkomin í samfélagið. Ef við erum bara með puttana í andlitinu á fólki, að segja því hvernig það eigi að vera öðruvísi þá fjarlægist fólk okkur og það er þvert á markmiðið sem við erum að reyna að ná í þessum málaflokki.