149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

staða innflytjenda í menntakerfinu.

[14:26]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Þetta er góð og þörf umræða og ég þakka hv. málshefjanda, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og hæstv. ráðherra fyrir orð þeirra sem og þeim þingmönnum sem hafa rætt hér. Mig langar að nota tíma minn til að vekja athygli á því sem varðar námsefni fyrir börn sem eru ekki með íslensku sem móðurmál.

Það er mikill skortur á námsefni fyrir þau börn. Ég er kannski pínulítið að koma inn á sama svið og sá hv. þingmaður sem talaði á undan mér, Helgi Hrafn Gunnarsson, en við verðum líka að huga að því til hvers við erum að þessu, af hverju við erum að tala um tungumálakunnáttu yfir höfuð, um börn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál. Það stoppar þau m.a. í námi ef námsefni er sniðið að öðru mengi, öðrum hópi en þeim. Við vitum öll sem hér erum að gott námsefni getur skipt sköpum bæði fyrir nemandann og kennarann, vegna þess að námsefnið er ákveðinn leiðarvísir fyrir kennarann, hvernig hann eigi að nálgast nemandann og uppfræða hann.

Þá komum við að því hvað við getum gert sem löggjafi. Það skiptir máli að námsefni fyrir þennan hóp, sem er vissulega fjölbreyttur, sé eins vel búið og annað námsefni en ekki einhver hefti sem eru ljósrituð eða einhvers konar redding eftir á sem vill því miður oft brenna við. Þá snýst það kannski bara um að koma einhverjum skilaboðum áleiðis á skiljanlegu formi en ekki ítarlegri hugsun þar undir til grundvallar eins og nauðsynlegt er að gera þegar verið er að búa til námsefni, sérstaklega fyrir unga fólkið okkar.

Undir hæstv. ráðherra heyrir Menntamálastofnun sem sér um útgáfu námsefnis fyrir grunnskóla og þar er skilgreint verkefni að nemendur fái notið bestu mögulegu menntunar. Samkvæmt lögum ber stofnuninni að sjá öllum grunnskólanemendum fyrir vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum í samræmi við aðalnámskrá. Það má spyrja sig hvernig við uppfyllum þetta ef við bjóðum ekki öllum nemendum upp á námsefni við hæfi. Hvernig móttaka er það við börn sem eru að reyna að fóta sig í nýjum skóla, nýju landi, á nýju tungumáli að fá ekki það besta mögulega námsefni (Forseti hringir.) sem er í boði?

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort verið sé að vinna að útgáfu á námsefni fyrir börn með annað móðurmál en íslensku. (Forseti hringir.) Hvernig er forgangsröðun ráðherra í því að gera nemendur sem best í stakk búna (Forseti hringir.) til að fá notið þeirrar menntunar sem hér er jú lögbundin?