staða innflytjenda í menntakerfinu.
Virðulegur forseti. Í þessari mikilvægu umræðu er að mörgu að gæta en ég vil beina sjónum mínum að háskólastiginu. Ég vil sérstaklega vekja athygli á rannsókninni Væntingar og tækifæri innflytjenda á Íslandi, sem er stýrt af Hönnu Ragnarsdóttir, prófessor í fjölmenningarfræðum. Þar koma fram ýmsar þær áskoranir sem má svo sem búast við, á borð við tungumálaerfiðleika, en jafnframt áskoranir sem sýna að heildræn nálgun á málaflokkinn klagar ekki bara uppi á menntamálayfirvöld heldur ýmsa aðra anga stjórnsýslunnar, eins og t.d. erfiðleika sem tengdir eru dvalar- og námsleyfi.
Þá langar mig að nefna inntökuskilyrði í háskóla varðandi íslenskukunnáttu, sem eru ekki nógu skýr. Það er jafnvel geðþóttaákvörðun starfsmanna t.d. hvort einstakir kennarar leyfi stúdentum að skila verkefnum á öðru tungumáli en íslensku. Þetta er ekki aðeins til að draga úr aðdráttarafli háskólanna heldur flækir þetta og gerir nám tímafrekara.
Þá megum við spyrja okkur hvort háskólar séu yfir höfuð með nógu skýra stefnu í málefnum og móttöku erlendra nema, hvort við mætum ólíkum hópum á ólíkan hátt. Stundum er nefnilega öllu blandað saman í einn graut, hvort sem það eru skiptinemar eða nemendur af erlendum uppruna sem oft hafa verið búsettir hér á landi um langa tíð. Þarna eru mjög ólíkar þarfir sem kalla á ólík viðbrögð.
Að lokum langar mig að nefna það að flétta fjölmenningu inn í kennaranám til að þetta smitist niður allan námsstigann. Það er mikilvægt að kennarar framtíðarinnar séu undirbúnir undir fjölmenningarlegt skólaumhverfi, ekki aðeins hvað varðar tungumálakennslu heldur líka menningarlæsi og víðsýni og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Hvaða leið er betri til þess en að fá alþjóðlega reynslu í háskóla, eins og við ráðherrann þekkjum t.d. af eigin raun með því að fara utan í skiptinám? Kennari sem skilur og styður nemendahópinn sinn í öllum sínum (Forseti hringir.) fjölbreytileika skiptir sköpum um menntun nemendanna og framtíð.