staða innflytjenda í menntakerfinu.
Virðulegi forseti. Markviss vinna að betri stöðu innflytjenda í íslensku menntakerfi er mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag. Þess vegna vil ég þakka þessa umræðu og allt sem hér hefur komið fram. Þjónusta við innflytjendur í íslensku menntakerfi er tiltölulega nýtt verkefni og hefur lengst af skort á þekkingu og reynslu um nám og kennslu í íslensku sem öðru tungumáli, hvernig best sé að skapa innflytjendum góðar aðstæður til annars náms og aðferðir við mat á fyrra námi og þekkingu innflytjenda. Nýr starfshópur um heildarstefnumörkun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku er þess vegna ótrúlega mikilvægur og ég hef miklar væntingar til vinnu hans.
Þá styðja margar aðgerðirnar í tillögu til þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi, við nám innflytjenda, bæði þær sem snúa beint að námi, en líka aðgerðir eins og aukið aðgengi almennings að upplýsingaveitum um íslenskt mál, svo sem orðabókum og orðasöfnum.
Þá vil ég rifja upp mikilvæg verkefni í menntastoð framkvæmdaáætlunar í málefnum innflytjenda fyrir árin 2016–2019, sérstaklega hvatningu til náms í móðurmáli og að grunnskólar skuli skrá hvort nemandi stundi nám í móðurmáli. En einnig er þar sérstök áhersla á íslenskukennslu foreldra skólabarna með annað móðurmál en íslensku.
En fyrst og síðast þarf faglega forystu og heildarsýn á menntun innflytjenda í íslensku menntakerfi. Byggja þarf upp þekkingu kennara og sérfræðinga, semja mjög gott og aðgengilegt námsefni fyrir börn og fullorðna og veita faglegan stuðning við skóla og símenntunarmiðstöðvar til að raunverulegar umbætur verði. Ekki má horfa á verkefnið í hólfum ríkis og sveitarfélaga, Vinnumálastofnunar og Menntamálastofnunar eða símenntunarmiðstöðva, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og mismunandi stéttarfélaga. Menntun innflytjenda (Forseti hringir.) er okkar allra og við erum öll íslenskukennarar.