um fundarstjórn.
Herra forseti. Þetta mál er að koma hér til 3. umr. eftir ítarlega umfjöllun í velferðarnefnd þar sem tveir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins sitja, flokks þess þingmanns sem óskar nú eftir að málinu verði frestað. Ég verð að lýsa undrun minni á því vantrausti sem þessir þingmenn fá frá þingmanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Að minnsta kosti höfum við í Samfylkingunni það þannig að við upplýsum hvert annað um það starf sem á sér stað í nefndum.
Málið var afgreitt úr nefnd eftir ítarlega vinnu. Það kom hingað til 2. umr., mælendaskrá tæmdist. Allir tóku til máls sem vildu. Málið fór aftur til nefndar milli 2. og 3. umr. og var unnið þar, rætt og klárað.
Ég skil ekki alveg á hvaða stað við erum núna. Við vorum að greiða atkvæði um afbrigði um að fá að taka málið á dagskrá. Það hreyfði enginn mótmælum þá. Af hverju greiddu allir atkvæði með því? (Forseti hringir.) Ég átta mig ekki alveg á því af hverju við ættum að fara að tefja þessa umræðu núna.