um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hér hefur verið tæpt á því að við höfum ekki rætt málið nægilega vel í velferðarnefnd. Það hefur verið rætt mjög vel og mjög ítarlega þar. Við höfum fengið til okkar gesti, m.a. prófessora, tvo prófessora í ljósmæðrafræðum, tvo fæðingar- og kvensjúkdómalækna. Við fengum landlækni, við fengum fulltrúa frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, Mannréttindaskrifstofu Háskóla Íslands, Félagi áhugafólks um Downs-heilkenni, Femínistafélagi Íslands og Kvenréttindafélagi Íslands. Við fengum einnig fulltrúa frá Landshlutasamtökunum Þroskahjálp. Allur þessi hópur fór vel yfir málið.
Mér þykir leitt ef hv. þm. Óli Björn Kárason treystir sér ekki til að taka afstöðu. Málið fór til nefndar 11. desember. Þeir sem hafa haft áhuga á að fylgjast með málinu hefðu alveg getað kynnt sér það í gegnum nefndarmenn í þeim þingflokkum sem við tilheyrum.