149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

um fundarstjórn.

[15:31]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég man satt að segja ekki eftir öðru þingmáli en þessu síðan ég kom hingað til þings sem mér finnst jafn áríðandi að almenn sátt náist um. Ég hef ekki heyrt það á ræðum þingmanna, hvorki hér nú eða fyrr, að þeir vilji skerða sjálfsákvörðunarrétt kvenna í þessu máli, alls ekki.

Þeir hafa tekið það fram, margir hverjir, að það sé einmitt það sem þeir vilja, að þeir vilji að sjálfsákvörðunarréttur kvenna sé ótvíræður. En menn hafa átt í erfiðleikum með viknafjöldann og ég nenni ekki að fara út í einhverja bílasalafrasa eins og prútt í því samhengi.

En ég verð að taka undir með hv. þm. Óla Birni Kárasyni um að forseti íhugi það verulega að fresta afgreiðslu málsins um hríð meðan fullreynt verður hvort ekki sé hægt að ná betri sátt en greinilega er hér uppi nú.