149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

um fundarstjórn.

[15:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Forseti. Ég hef einsett mér frá upphafi málsins að tala af yfirvegun. Ég ætla að halda því áfram þrátt fyrir þann fáheyrða subbuskap sem hv. þm. Inga Sæland lét sér sæma að demba yfir mig og ýmsa aðra þingmenn fyrir stuttu síðan.

Varðandi þetta álitamál um vikurnar hef ég þetta að segja og hef sagt það áður: Þessi ákvörðun er tekin hvort eð er. Hún hefur verið tekin til þessa. Slíkar aðgerðir fara fram, þær hafa farið fram. Það hefur bara ekki verið hver kona sem hefur ráðið för hverju sinni og því erum við að breyta hér. Það hefur ítrekað komið fram af hálfu þeirra sem telja breytinguna ónauðsynlega að engri konu hafi verið hafnað. Það eru rökin fyrir því að það er hægt og þarft að breyta þessu. Konur standa undir ábyrgð. Konur bera ábyrgð á sjálfri sér almennt, þessu líka. Þær geta það og þær eiga að fá að gera það og við eigum að breyta þessu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)