149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

um fundarstjórn.

[15:35]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Eins og komið hefur fram hjá fleiri en einum er málið fullrætt í velferðarnefnd. Þeir flokkar sem hafa viljað hafa getað fjallað um það í þingflokkum sínum þar að auki. Það hefur þingflokkur Samfylkingarinnar gert og rætt málið í hörgul. Hér er talað um mikilvægi þess að fresta málinu til að ná sátt. Ná sátt um hvað? Að þrengja jafnvel réttindi kvenna frá því sem nú er? Er það nú öll sáttin sem á að bjóða upp á? Nei, herra forseti, við þurfum ekki á því að halda.

Ég varð líka kannski vitni að — nei, ekkert kannski heldur örugglega sorglegustu ummælum sem ég hef heyrt úr þessum ræðustól frá því að ég tók fyrst þátt á Alþingi. Mér finnst þau auðvitað sérstaklega sorgleg fyrir allar þær fjölmörgu konur sem hafa þurft og ákveðið að fara í þungunarrof.