149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

um fundarstjórn.

[15:36]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Hér er talað um sátt, að sátt náist um þetta mál. Ég vil halda því til haga að það mun ekki nást sátt við þá hv. þingmenn sem álíta þungunarrof vera morð. Það mun ekki nást sátt við þá hv. þingmenn sem vilja að karlmenn hafi aðkomu að ákvörðun konu varðandi frjósemi hennar. Það mun ekki nást sátt við þá.

Það mun heldur ekki nást sátt við þá hv. þingmenn sem halda að samróma niðurstaða sérfræðinga um vikufjölda um nauðsynlega og lífsnauðsynlega þjónustu sé eitthvert matsatriði tilfinninga hv. þingmanna sem enga reynslu hafa af óvelkominni þungun í eigin líkama.

Það er ekki ykkar, veðurfræðingur hér, sem ræður hvað þetta varðar. Þetta er einróma mat sérfræðinga og það mun ekkert nást sátt um þetta.