149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

um fundarstjórn.

[15:42]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Mér verður eiginlega ómótt af því að hlusta á hv. þm. Ingu Sæland koma hér og ræða þetta mál eins og hún leyfir sér að gera. Ég var að vonast til þess þegar hún kom hérna öðru sinni að hún ætlaði að biðja þá sem hlusta hér afsökunar á orðum sínum, en hún gerði það ekki. Ég vona að það gerist þá bara á síðari stigum, vegna þess að svona gerir maður ekki.

Þetta er mikið hitamál en maður getur ekki leyft sér að tala með þeim hætti sem hv. þingmaður hefur gert í þessu máli. Þetta eru alvarleg mál. Þessar ákvarðanir eru aldrei teknar af léttúð. Þetta mál hefur verið hérna í þinginu og fengið faglega meðferð í langan tíma og allir þeir þingmenn sem sitja hér eiga vel að hafa getað kynnt sér það mál í hörgul, ýmis álit og alls konar umræðu sem átt hefur sér stað. En að nota þau orð sem hér hafa fallið er algjör viðbjóður. Ég vil biðja um að við reynum að stilla okkur.