um fundarstjórn.
Forseti hefur ekki heyrt neitt í þessari umræðu sem hefur sannfært hann um að rétt sé að hverfa frá þeirri dagskrá sem kynnt var í gær og hyggst því halda sig við hana. Forseti tekur hins vegar undir það sem hv. þingmenn hafa sumir nefnt. Okkur ber að sýna tillitssemi og nærgætni, bæði gagnvart umræðuefninu sjálfu og hvert öðru. Forseti vonast til að umræðan geti nú hafist og farið fram á slíkum nótum sem sé Alþingi til sóma en ekki hins gagnstæða.
Forseti vill hins vegar upplýsa að atkvæðagreiðsla um þetta mál verður að sjálfsögðu ekki fyrr en að aflokinni 3. umr. og ekki fyrr en í næstu viku, þannig að hún mun ekki fara fram í dag.