149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[15:58]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætlaði að koma hingað upp til að spyrja hvaða rök lægju að baki breytingartillögu hv. þingmanns, en hann hefur farið ágætlega yfir það í ræðu sinni og tekur það sérstaklega fram að það séu ekki læknisfræðileg rök heldur sé þetta byggt á umsögn Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Gott og vel.

Hann vísar líka í frumvarp hæstv. heilbrigðisráðherra eins og það var fyrst lagt fram. Mig langar að upplýsa hv. þingmann að þegar það var fyrst lagt fram var samt gengið út frá því að það yrðu ákveðnar undanþágur sem heimiluðu þungunarrof eftir 18. viku. Þá yrði bara, eins og í núgildandi löggjöf, nefnd sem færi yfir það hvort lífi móður væri stefnt í hættu eða hvort fóstur teldist ekki lífvænlegt og það væri þá ekki gerandi konu að ganga með dáið eða deyjandi barn til loka, enda get ég ekki ímyndað mér þá upplifun.

Nú spyr ég: Hvar er tekið á þessum tilfellum í breytingartillögu hv. þingmanns? Ég sé þeirra ekki stað. Þannig að konur hverra lífi er ógnað hafa enga undanþágu, hafa enga útkomuleið. Konur sem ganga með börn sem munu ekki lifa fæðinguna af, munu jafnvel ekki lifa á fimmta mánuð eða sjötta mánuð meðgöngu — samkvæmt þessari breytingartillögu þá vill hv. þingmaður að löggjöfin neyði konuna til þess að ganga með barnið. Það er niðurstaðan af þessu. Það er ástæðan fyrir því að við sem hér tölum um að verið sé að þrengja núverandi rétt kvenna til að fara í þungunarrof vegna þess að það er heimilt fram á 22. viku núna þegar lífi móður er stefnt í hættu á meðgöngunni, eða þegar miklar líkur eru á að barnið lifi þetta ekki af. Hvað ætlar hv. þingmaður að gera fyrir þær konur?