149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[16:00]
Horfa

Páll Magnússon (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það kann að vera að í þessari spurningu felist ástæðan fyrir því að við hefðum líka átt að hlíta ráðum Siðfræðistofnunar þegar hún leggur áherslu á það í lokaniðurstöðu sinni að mikilvægt sé að flýta ekki um of afgreiðslu þessa frumvarps. Hefði málið ekki verið afgreitt svo hratt úr nefndinni í gær hefði mátt hugsa sér að byggja við þessa tillögu undanþágutilvikin sem eru væntanlega þau sömu eftir 20. viku eins og nú er eftir 22. viku. Ekki er það svoleiðis, jafnvel þó að frumvarpið færi fram óbreytt núna, að eftir 22. viku þá væri konum gert að ganga með dáið eða deyjandi fóstur? Það eru sömu undantekningarákvæði sem giltu eftir 20. eins og eftir 22. viku. Það er enginn munur þar á.

Svo að ég svari spurningu hv. þingmanns beint: Ástæðan fyrir því að ég legg þessa breytingartillögu fram er einmitt sú að gera málið þannig úr garði — ég geri mér alveg grein fyrir því að fullkomin sátt um mál af þessu tagi næst ekki og fyrir því geta verið trúarlegar forsendur og alls konar forsendur, en ég tel mikilvægt að sem flestir geti unað við frumvarpið og ég tel að stíga hefði átt skref í þá átt sem ég legg til með þessari breytingartillögu.