149. löggjafarþing — 101. fundur,  7. maí 2019.

þungunarrof.

393. mál
[16:07]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Anna Kolbrún Árnadóttir) (M):

Hæstv. forseti. Ég er komin hér upp til að draga breytingartillögu mína við 4. gr. til baka. Ég lagði mig fram um að ná frekari sátt í velferðarnefnd með því að fá málinu vísað þangað inn. Það fékk vissulega umræðu þar á nefndarfundi í gær án þess þó að komið væri til móts við þær spurningar allar. Einhverjum hafði verið svarað, ég tek undir það, en án þess að komið væri til móts við þær tillögur sem þar voru lagðar fram með frekari gestakomur og jafnvel þó svo að einhverjir gestir væru boðaðir aftur.

Það er ekki sátt um þetta mál, það sást hvað best í nefndarálitum sem fram komu. Að þessu sögðu þá stend ég enn föst á því að betra hefði verið að halda fast í upprunalega tillögu hæstv. heilbrigðisráðherra um 18 vikur.

Ég ítreka að málið var tekið úr nefnd. Ég er ekki á því að maður eigi að stoppa mál. Frekar vil ég fá mörg álit. Einhverjir nota þau rök að málin séu ekki fullreifuð. En mér finnst mjög mikilvægt að það ferli sé virt að taka mál úr nefnd og hleypa því í 2. umr. Þar með má setja málið aftur í nefnd af því að maður aflar upplýsinga við 2. umr. Ég hefði viljað að við ræddum málið aðeins lengur, einn fund í viðbót, í velferðarnefnd til að loka á allt sem hugsanlega hefur komið upp við 2. umr. Þannig finnst mér að þetta tannhjól hefði mátt virka.

Ég styð sjálfsákvörðunarrétt kvenna sem hér er ræddur og vissulega er tími til kominn. Ég er alls ekki á móti því. En ég tel samt sem áður að með því að fara fram í 22. viku sé ekki verið að virða umsagnir Öryrkjabandalags Íslands, sem eru þrátt fyrir allt regnhlífarsamtök fyrir fjölmörg önnur samtök. Ekki er verið að virða umsagnir Þroskahjálpar og ekki er verið að virða umsögn Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Um það fjallar sérálit mitt sem ég batt við 18 vikur.