þungunarrof.
Hæstv. forseti. Ég gat því miður ekki verið á fundinum sjálf þar sem ég var í lyfjagjöf. Og oftar en ekki hefur varamaður minn komið í minn stað og er ekkert óeðlilegt við það. Hins vegar geri ég mér grein fyrir að einhverjum spurningum hafði verið svarað. Ég var beðin af þingflokki mínum um að bera fram þessar spurningar, sem ég bað svo varamann minn, hv. þm. Sigurð Pál Jónsson, um að fara með á fundinn.
Ég er alls ekki sammála því að öllum spurningum hafi verið svarað. Til dæmis eru spurningar er varða þær konur sem við sendum út — að talið er fjórar til fimm á ári. Hver ber þann kostnað? Segjum við fjórar til fimm vegna þess að við vitum ekki alveg hversu margar þær eru? Því er haldið fram að við getum ekki hafnað því að nýta það úrræði vegna þess að þær hafa ekki fjárhagslegt bolmagn. En einhvers staðar fáum við þessa tölu, fjórar til fimm konur.
Ég ítreka hér að mér þætti gott ef við tækjum einn snúning enn, eins og það er kallað, í velferðarnefnd, bara til þess að fá botn í þó þær spurningar sem ekki eru komin nægjanlega góð svör við.